Síminn liggur á gögnum sem gætu leyst nauðgunarmál Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. ágúst 2012 15:10
Hæstiréttur Íslands úrskurðaði í gær að Símanum sé ekki nauðsynlegt að láta af hendi upplýsingar sem gætu nýst við lausn á nauðgunarmáli sem rannsakað er. Umrætt mál kom upp við Fjósaklett í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum þann 6. ágúst síðastliðinn, en grunur leikur á að ólögráða stúlku hafi verið naugðað þar. Í kröfu lögreglunnar kemur fram að hvorki stúlkan né aðrir sem með henni hafi verið umrædda nótt hafi getað borið kennsl á ætlaðan geranda. Stúlkan hafi gefið lýsingu á manninum og þeim fatnaði sem hann hafi klæðst. Við skoðun á myndbandsupptöku úr eftirlitskerfi, sem sérstaklega hafi verið sett upp vegna Þjóðhátíðarinnar í Vestmannaeyjum þann 3.-6. ágúst sl., megi sjá karlmann sem svipi til lýsingar brotaþola á ætluðum sakborningi, hlaupa frá brotavettvangi og niður á bifreiðastæði í Herjólfsdal. Einungis vinstri hlið hans og bak sjáist, en á upptökunni sjáist maðurinn tala í síma á framangreindum tíma, skömmu eftir að hið ætlaða brot hafi verið framið. Krafan laut að því að símafyrirtækjum væri skylt að veita upplýsingar um alla farsíma sem hringt var úr eða í um fjarskiptamöstur og náðust inni í Herjólsdal á tilgreindum tíma. Lögreglan telur að vegna rannsóknar málsins sé nauðsynlegt að afla þessa gagna frá Símanum svo takast megi að upplýsa hver hafi verið á ferð. Héraðsdómur Suðurlands féllst á kröfu lögreglunnar um að öllum fjarskiptafyrirtækjum yrði gert að afhenda gögnin. Síminn kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Hæstiréttur segir að þar sem að krafa lögreglunnar á Suðurlandi beinist ekki að tilteknum síma eða fjarskiptatæki heldur að því að veittar verði upplýsingar um alla farsíma verði kröfu lögreglustjórans á Selfossi verði hafnað, um að Símanum verði gert að afhenda lögreglu upplýsingar um inn- og úthringingar um þau fjarskiptamöstur sem náðu inn í Herjólfsdal á tímabilinu frá klukkan 5.35 til 5.45 mánudaginn 6. ágúst síðastliðinn. Hér má lesa úrskurð Hæstaréttar.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Fleiri fréttir Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira