Segir WOW air nota villandi tungutak 29. október 2012 10:18
Flugmálastjórn Íslands hefur fundið sig knúið til þess að setja tilkynningu á heimasíðu sína þar sem það er áréttað að WOW air sé ekki flugrekstrarfélag í þeim skilningi að félagið eigi og haldi úti loftfari. Ástæðan er sú að í tilkynningu WOW air þegar félagið yfirtók hluta af rekstri Iceland Express í síðustu viku, kom fram að félagið hefði teki yfir flugrekstur IE. Svo segir í tilkynningu: „Iceland Express og WOW air hafa vissulega stuðlað að reglubundnum flutningi á fólki og vörum til og frá Íslandi og aukinni samkeppni, en þeir hafa til þess þurft að fá flugrekenda frá Evrópska efnahagssvæðinu með tilskilin flugrekstrarleyfi til að annast flugið fyrir sig. Það er ávallt flugrekandinn sem ber ábyrgð fluginu s.s. á lofthæfi flugvélarinnar og þjálfun áhafna." Þá segir ennfremur á heimasíðunni að flugrekandi sé einstaklingur, fyrirtæki eða stofnun sem stundar eða býðst til að stunda rekstur loftfars í atvinnuskyni. Flugrekandi þarf flugrekstrarleyfi flugmálayfirvalda ríkis á Evrópska efnahagssvæðinu. Flugmálastjórnar Íslands veitir það leyfi hérlendis. Til þess að fá flugrekendaskírteini og flugrekstrarleyfi hérlendis þarf að sýna fram á að skilyrðum flugöryggisstofnunar Evrópu ((EASA) (European Aviation Safety Agency) um flugöryggi sé fullnægt. Kostnaðurinn við að öðlast flugrekstrarleyfi mælist í milljónum króna og ferlið getur tekið fleiri mánuði. Svo segir að lagalega séð sé óhætt að kalla WOW air flugfélag, sem myndi þá vera ferðaskipuleggjandi, eða einstaklingur eða lögaðili sem, setur saman, býður fram og selur í atvinnuskyni ferðatengda þjónustu fyrir almenning þar með farmiða með flugvélum. Svo segir í tilkynningunni: Kostnaður við að öðlast ferðaskrifstofuleyfi og ferðaskipuleggjandaleyfi eru fáeinar þúsundir króna auk kostnaðar við tryggingar og ferlið mælist í dögum. Svo segir orðrétt í lokin: „Flugmálastjórn Íslands vill að lokum koma því á framfæri að það er mjög svo villandi tungutak þegar ferðaskipuleggjandi gefur í skyn að hann ráði yfir loftfar, annist flugrekstur og ráði flugáhafnir til starfa, þegar hann hefur í raun gert þjónustusamning við flugrekanda sem ber einn ábyrgð á lofthæfi flugvélanna og starfrækslu þeirra. Áhafnirnar eru á ábyrgð flugrekandans og starfa undir hans stjórn en ekki ferðaskipuleggjandans." Einnig er hægt að fræðast um málið á vef túrista.is.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Fleiri fréttir ÖBÍ greiðir málskostnaðartryggingu Jakubs Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Sjá meira