Innlent

Sandy: Áhöfn HMS Bounty bjargað

HMS Bounty.
HMS Bounty. MYND/AP
Björgunarmenn bandarísku landhelgisgæslunnar hafa bjargað fjórtán af sextán skipverjum seglskipsins HMS Bounty. Áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið þegar það lenti í nauðum suðaustur af Hatteras-höfða í Norður-Karólínu fyrr í dag.

Um tíma hafði áhöfnin til í tveimur björgunarbátum. Veður á svæðinu er afar slæmt en miðja fellibylsins Sandy er í rúmlega 250 kílómetra fjarlægð.

Vegna veðurofsans þurfti að gera hlé á björgunaraðgerðunum. Vindhraði á svæðinu er um 64 kílómetrar á klukkustund og ölduhæð hefur náð tæpum sex metrum.

Skipverjarnir voru síðan hífðir upp í björgunarþyrlu fyrir skömmu. Enn er tveggja leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×