Bara spurning hvenær illa fer GAR skrifar 31. október 2012 08:00 Gríðarleg umferð er um Borgarfjörð á sumrin og mikill fjöldi gesta dvelur á svæðinu. Slökkviliðsstjórinn vill efla vaktir þessa mánuði.Fréttablaðið/Pjetur
Bjarni K. Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð, segir það vera sér mikið áhyggjuefni hversu illa liðið sé mannað um helgar á sumrin. „Það er aðeins fyrir fórnarlund þess einstaka mannskaps sem ég hef að þetta hefur sloppið til hingað til,“ segir Bjarni við Fréttablaðið. Í bréfi til byggðaráðs Borgarbyggðar segir Bjarni eldsvoða sem varð hjá fyrirtækinu Loftorku í september í fyrra dæmi um ástandið. Þar hafi eldur kraumað í olíu og feiti þannig að nánast öll einingasteypuhús fyrirtækisins hafi fyllst af kolsvörtum reyk. „Þá voru tiltækir í Borgarnesi sex menn og einungis fyrir harðfylgi og hárrétt viðbrögð þeirra tókst að forða hundraða milljóna króna tjóni,“ segir Bjarni í bréfinu. „Að þónokkrum tíma liðnum komu úr liðseiningum okkar á Hvanneyri og Reykholti níu menn til viðbótar þannig að tiltækir voru fimmtán menn þann daginn en oft er ástandið miklu verra um helgar og einungis spurning um hvenær illa fer.“ Við Fréttablaðið segir Bjarni lausnina einfaldlega felast í því að fé verði sett í að tryggja aukinn liðsafla þannig að fimm manna vaktir verði um helgar á sumrin. Ekki sé endalaust hægt að treysta á að menn séu tiltækir að stökkva til þegar á reynir. Byggðaráðið samþykkti að óska eftir að forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs gerði minnisblað um málið.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Sjá meira