Afgangur af rekstri Reykjavíkur 2013 Magnús skrifar 31. október 2012 08:00 Borgarfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar kynntu fjárhagsáætlunina í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.Fréttablaðið/Anton
Gert er ráð fyrir að samstæða Reykjavíkurborgar skili 7,6 milljarða króna afgangi á næsta ári. Þar af stendur til að A-hluti hennar, hinn eiginlegi rekstur borgarinnar, skili 329 milljóna króna afgangi. Borgarstjórnarmeirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar kynnti í gær fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 og svokallaða fimm ára áætlun fyrir árin 2013 til 2017. Jón Gnarr borgarstjóri kynnti áætlunina á kynningarfundi í Ráðhúsinu með þeim orðum að hún leiddi í ljós að hagur borgarinnar væri að vænkast. „Við höfum ástundað það sem við höfum gjarnan kallað ömmuhagfræði sem einkennist af sparnaði, ábyrgð og niðurgreiðslu skulda. Jafnframt höfum við staðið þétt við velferðarmálin og nú er svo komið að við leggjum fram fjárhagsáætlun sem er að mestu leyti gleðileg.“ Í áætluninni er gert ráð fyrir að rekstrartekjur borgarinnar verði 126 milljarðar á árinu 2013 en rekstrargjöld 107 milljarðar. Þá mun handbært fé frá rekstri nema 28,5 milljörðum, standist áætlunin, en þar af renna 20,9 milljarðar í afborganir og vexti af skuldum. Til samanburðar stefnir í að handbært fé frá rekstri verði 25,3 milljarðar á þessu ári miðað við 119 milljarða í rekstrartekjur og 101 milljarð í rekstrargjöld. Rekstrarniðurstaða á þessu ári er hins vegar ráðgerð neikvæð um tæplega milljarð. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, tók einnig til máls á kynningarfundinum í gær. Vakti hann meðal annars athygli á þeirri áskorun borgarinnar að einstaklingum sem þurfa fjárhagsstoð frá borginni myndi fjölga um mörg hundruð um áramótin þar sem réttur þeirra til atvinnuleysisbóta væri þá runninn út. Sagði Dagur að fjárframlög til fjárhagsaðstoðar myndu af þessum sökum aukast um ríflega milljarð króna. „Þar að auki munum við setja töluverða peninga í atvinnutengd átaksverkefni fyrir þennan hóp og í framkvæmdir,“ sagði Dagur. Alls mun borgarsjóður verja um sjö milljörðum í framkvæmdir á næsta ári en meðal þess sem stendur fyrir dyrum eru gagngerar endurbætur á Hverfisgötu. Eins og áður sagði var einnig kynnt fjárhagsáætlun til fimm ára í gær. Þar er gert ráð fyrir stigbatnandi rekstrarniðurstöðu og örri niðurgreiðslu skulda. Standist áætlunin mun Reykjavíkurborg uppfylla nýlegar reglur um hlutfall skulda sveitarfélaga af reglulegum tekjum árið 2016. Samkvæmt reglunum má það hlutfall ekki vera hærra en 150%. Þá er gert ráð fyrir því að útsvarshlutfall og gjaldskrárprósentur hjá borginni verði óbreytt öll þessi fimm ár.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Margrét fær ekki að áfrýja dómnum til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Sjá meira