Bakarar íhuga að birgja sig upp af sykri Karen Kjartansdóttir skrifar 31. október 2012 21:15
Bakarar og aðrir sem nota sykur við framleiðslu íhuga að birgja sig upp vegna fyrirhugaðs sykurskatts um næstu áramót. Samtök Iðnaðarins telja að um dulda skattlagningu og Neytendasamtökin óttast að aukin gjöld á sykri hækki matvælaverð enn frekar. Íslendingar neyta samtals um það bil 14000 tonna af sykri árlega. En það þýðir að hver landsmaður neytir árlega um það bil 44 kílóa af sykri á ári. Reynt hefur verið að draga úr sykurneyslu undanfarin ár með því að leggja vörugjöld á sykraðar vörur sem nú nema um það bil 2.2 milljörðum árlega. Fyrirhugaðar eru breytingar á innheimtu á þeim gjöldum auk þess sem fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár gerir ráð fyrir að aflað sé 800 milljóna aukalega. Samtök Iðnaðarins telja því að samtals verði innheimtir um þrír milljarðar vegna sykurs árlega á næsta ári. Og það getur í grófum dráttum orðið til þess að 200 króna sérskattur leggist ofan á hvert kíló af sykri. Enn liggur þó ekki fyrir frumvarp um þessar tilteknum fjáröflunaraðgerðir en í svari frá ráðuneytinu kemur fram að það sé stefna ráðuneytisins að vörugjald á matvæli taki til framtíðar mið af manneldissjónarmiðum. Í því sambandi segir sérstaklega litið til viðbætts sykurs í matvælum. Ráðuneytið leggi því mikla áherslu á að klára umrædda vinnu sem fyrst. Samtök Iðnaðarins gefa lítið fyrir þau rök og segja gjaldið ekkert annað en dulda skattheimtu sem almenningur eigi erfitt með að átta sig á. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að sumir séu þegar farnir að byrgja sig upp af sykri. Jóhannes Felixson, formaður Landssambands bakarameistara sagði að þótt bakarar væru ekki að hamstra sykur væru menn vissulega að hugsa hvað þeir ættu að gera vegna aðgerða stjórnvalda. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, hefur efasemdir um að gjöld á sykraðri vöru nýtist til að bæta heilsu þjóðarinnar en óttast að aðgerðirnar geti orðið til þess að hækka vöruverð. Samtökin leggjast því gegn hvers kyns sykurskatti.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent „Nú er komið að mér“ Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira