Umfangsmikil flugslysaæfing á Suðurnesjum 5. maí 2012 19:30
Farþegaflugvél þurfti að nauðlenda á Keflavíkurflugvelli eftir að eldur kom upp í vélinni. Þetta voru skilaboðin sem þátttakendur í flugslysaæfingu á Suðurnesjum fengu í dag. Æfing sem þessi hefur gríðarlega þýðingu þar sem hún sýnir fram á virkni flugslysaáætlunar fyrir Keflavíkurflugvöll. Reynt er að líkja fullkomlega eftir raunverulegu flugslysi til að þjálfa fólk í erfiðum aðstæðum. Þeir sem tóku þátt í æfingunni eru björgunarsveitir, slökkvilið, lögregla og heilbrigðisstarfsmenn af öllum Suðurnesjum, og fleiri, auk mannskapar frá Reykjavík. Þá eru sjálfboðaliðar í hlutverkum farþega. Fréttastofa kom á vettvang þegar verið var að flytja slasaða í öruggt skjól. Fulltrúar Rannsóknarnefndar flugslysa voru á staðnum og er þeim sem stjórna rannsókninni ekki ætlað að gefa fjölmiðlum upplýsingar í raunverulegum slysum, fyrr en staðan er skýr. Fréttamaður tók fullan þátt í æfingunni með því að reyna að sannfæra rannsóknarmenn um að koma í viðtal, en þeir stóðust prófið. Þeir slösuðu voru síðan fluttir á sérstaka söfnunarstöð slasaðra þar sem ástand þeirra er metið og þeir flokkaðir eftir því hversu alvarleg meiðsli þeirra eru. Þá er sérstök söfnunarstöð í annarri byggingu fyrir látna. Æfingin er ein sú stærsta sem haldin hefur verið hér á landi. Um 360 manns tóku þátt og kostnaðurinn hleypur á bilinu 15 til 20 milljónum króna. Þrjú ár eru síðan svo umfangsmikil æfing hefur verið haldin hér á landi. Byrjað var að skipuleggja æfinguna fyrir um fjórum mánuðum. Hann hófst með endurskoðun á flugslysaáætlun, og því næst fræðslu til þátttakenda, og lauk svo með hinni eiginlegu æfingu í dag.
Mest lesið Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Fleiri fréttir „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Sjá meira