Burðardýr með 2,7 kíló af fíkniefnum JHH skrifar 15. október 2012 10:31
Það sem af er þessu ári hafa níu burðardýr fíkniefna verið stöðvuð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem öll áttu það sammerkt að vera með fíkniefni innvortis. Samanlagt var fólkið með nær 2.7 kíló af fíkniefnum þegar för þess var stöðvuð. Langstærstur hluti þessa magns var kókaín eða rúm 2.2 kíló. Þar átti eitt burðardýranna, fertugur karlmaður með þýskan ríkisborgararétt, drjúgan hlut að máli því hann reyndist vera með tæplega 1.3 kíló af kókaíni í iðrum sér, sem talið er metmagn í þessum efnum. Tollgæslan stöðvaði hann í Leifsstöð í lok ágústmánaðar. Auk kókaínsins, sem að framan getur, var þýsk kona tekin með rúmlega 400 grömm af e - töfludufti, sem hún hafði komið fyrir innvortis. Önnur kona, íslensk, reyndist vera með rúm 27 grömm af hassi.Tvöfalt meira magn en í fyrra Ofangreint magn, sem tollgæslan hefur stöðvað smygl á hingað til lands það sem af er árinu, er nær tvöfalt meira heldur en það magn fíkniefna sem tekið var allt árið í fyrra hjá innvortis burðardýrum. Þá komu upp níu slík mál í Leifsstöð, þar sem tekin voru rúmt kíló af kókaíni, tæp 145 grömm af MDMA og svipað magn af amfetamíni. Sé litið til ársins 2010 til samanburðar, þá stöðvaði tollgæslan för sjö burðardýra á því ári öllu. Samanlagt voru þau með tæp 2.2 kíló fíkniefna innvortis. Langstærstur hluti efnanna var kókaín og amfetamín, rúmt kíló af hvoru. Einnig var um að ræða lítilræði af maríjúana og hassi. Á árinu 2009 voru tíu burðardýr tekin með samtals tæp 1.7 kíló af fíkniefnum. Að stærstum hluta var um að ræða kókaín, eða tæplega 1.4 kíló. Þá voru tekin rúm 320 grömm af amfetamíni og smáræði af hassi.Flestir koma frá Kaupmannahöfn Burðardýrin í þeim 35 málum sem komið hafa upp á ofangreindu árabili voru 25 karlmenn og tíu konur. Elsta burðardýrið var rúmlega sextugur litháískur karlmaður og það yngsta tvítugur íslenskur karlmaður. Átján þeirra sem tollgæslan stöðvaði voru að koma frá Kaupmannahöfn.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira