Selaát örvar kynhvötina BBI skrifar 15. október 2012 13:31 Selkjöt er frygðarauki. Mynd/Vilhelm
Selaát hefur kynörvandi áhrif. Þetta fullyrðir Sophus Magnússon selaveiðimaður frá Ísafirði sem veiðir og verkar sel allan ársins hring. „Það er alveg ótvírætt að það er mikill kynhvati af þessu kjöti," segir Sophus „Ég þekki af þessu margar sögur og get bara sagt þér eina upp úr bókunum hans Gísla Hjartarsonar," segir hann og rekur söguna. „Þar segir Halfdan Guðreðarson frá því þegar konan flúði frá honum á ellefta sel. Það segir sig náttúrlega sjálft. Það var ekki af því að hún hefði fengið ólyst á matnum heldur því hún þoldi ekki við vegna kraftsins í karlinum." Sophus Magnússon veiðir einkum sel til eigin neyslu en þó er hann líka stundum fenginn til að útvega sel þegar til stendur að halda veislur eða uppákomur. „Við gerum þetta eftir þörfum fólks. Ég hef gert þetta alveg frá því ég var krakki. Þegar okkur vantar sel þá næ ég í sel," segir hann en hann veiðir hann allan ársins hring. „En það fer alla vega ekkert milli mála að þetta er frygðaraukandi. Hérna áður hefði margur Íslendingurinn hvorki komist af eða undir ef ekki hefði verið fyrir selinn," segir hann. Það var fréttamiðillinn Bæjarins Besta sem greindi fyrst frá þessu.
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira