Kallar eftir skýrum skilaboðum frá stjórnvöldum Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 15. október 2012 19:30
Kallað er eftir því að nýtt umhverfismat verði unnið fyrir virkjun í Bjarnarflagi við Mývatn. Forstjóri Landsvirkjunar kallar eftir skýrari skilaboðum frá stjórnvöldum í málinu. Framkvæmdir Landsvirkjunar í Bjarnaflagi hafa verið í umræðunni síðustu daga en í sumar hófst fyrirtækið handa við að skipta um jarðveg undir fyrirhuguðu stöðvarhúsi virkjunarinnar. Landvernd vakti athygli á málinu fyrir helgi og krafðist þess að framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar. Þá tók Álfheiður Ingadóttir málið upp á þingi og sagði málið skýrt brot á þegjandi samkomulagi þess efnis að fyrirtæki haldi að sér höndum „í virkjanaæði" eins og hún orðaði það, á meðan rammaáætlun hefur enn ekki verið afgreidd á Alþingi. Þá hefur einnig verið bent á að byggt sé á tæplega tíu ára gömlu umhverfismati og því nauðsynlegt að gera nýtt mat enda hafi margt nýtt komið fram um jarðvarmavirkjanir á síðastliðnum áratug. Málið var tekið fyrir á fundi umhverfis- og samgöngunefndar í morgun þar sem fulltrúar Landsvirkjunar mættu á ásamt fleiri gestum. Álfheiður átti frumkvæðið að því að kalla fulltrúa Landsvirkjunar fyrir fundinn. Er hún sátt við svör þeirra? „Nei því miður þá er ég það ekki. Ég hefði vænst þess að Landsvirkjun myndi að sjálfsögðu bregðast við athugasemdum Landverndar og athugasemdum Umhverfisstofnunar og að eigin frumkvæði láta fara fram nýtt umhverfismat á þeim þáttum sem geta greinilega skaðað lífríki Mývatns." Álfheiður segir það nú í höndum Skipulagsstofnunar hvort farið verði fram á nýtt umhverfismat. Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar segir, að komi fram ósk um það verði að sjálfsögðu orðið við því en að þá yrði að fresta framkvæmdinni um einhvern tíma. Hörður segir að umræðan nú komi mönnum á óvart enda hafi þessi tiltekni virkjunarkostur komið vel út í skýrslu verkefnastjórnar um Rammaáætlun. „Við könnumst ekki við það við höfum ekki orðið varir við neinn þrýsting frá stjórnvöldum um annað en að starfa bara eftir þeim lögum sem gilda. Það hefur verið verulegur þrýstingur frá stjórnvöldum að rammaáætlun tefji ekki uppbyggingu á þessu svæði." Hörður segir ekki ákveðið hvaða framhald verði á framkvæmdunum í Bjarnarflagi. Erindi Landverndar um að framkvæmdum verði tafarlaust hætt verður tekið fyrir á næsta stjórnarfundi. Hörður minntist á það á fundinum að skilaboð frá stjórnvöldum hafi verið nokkuð misvísandi síðustu daga. Og hvað varðar hið margumrædda þegjandi samkomulag segir Hörður: „Það hefur bara verið síðustu vikurnar. Það hafa verið afar skýr skilaboð fram að þessu en það er afskaplega mikilvægt fyrir fyrirtækið að það komi skýr skilaboð frá stjórnvöldum hvort ætlast sé til að fyrirtækið haldi að sér höndum á meðan Rammaáætlun verður til eða ekki, þau skilaboð hafa aldrei komið fram áður."
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira