Hænsnabóndi óttast að hann sé á leið á götuna Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. október 2012 17:01 Júlíus Már Baldursson er ósáttur við ráðuneytið.
Júlíus Már Baldursson, sem hefur rekið landnámshænsnabú á bænum Tjörn í Vatnsnesi við Hvammstanga, óttast að hann sé kominn á götuna. Hann og bróðir hans voru ábúendur á Hvammstanga um árabil áður en allt brann í mars 2010. Jörðin, var leigujörð og skráð á bróður hans, en þegar allt brann þá var þeim samningi rift og Júlíus Már óskaði eftir að fá jörðina skráða á sig. Aftur á móti fékk hann þau skilaboð að ráðuneytið yrði að auglýsa jörðina, þrátt fyrir að Júlíus hefði búið á henni um árabil og verið með lögheimili sitt skráð á henni. „Það dróst að auglýsa jörðina og endaði með því að ég sendi bara inn fullbúna umsókn í apríl í fyrra," segir Júlíus. Sú umsókn hafi ekki verið tekin gild og jörðin ekki verið auglýst fyrr en seint og síðar meir. Þá hafi ráðuneytið aftur hvatt hann til að sækja um. Hann hafi svo loksins fengið svar á föstudaginn um að hann fengi ekki jörðina. Það hafi verið mjög svekkjandi, enda hafi hann verið í uppbyggingarstarfi í þrjú ár. „Ég er kominn með nýjan stofn og ég er búinn að kaupa nýja kæla fyrir eggin og ég er búinn að kaupa nýjar útungunarvélar. Ég sit uppi með það og sennilega verð ég bara að hætta og selja þetta. Það er verið að henda mér, öryrkja á götuna með lifandi dýr og fugla og þeim er bara alveg slétt sama," segir Júlíus, sem er ekki sáttur við ráðuneytið. Mannlegi þátturinn er bara ekki til. Ég er rosalega ósáttur við þetta, en mér finnst bæði að það sé búið að brjóta á mér mannréttindi og traðka á mér," segir hann. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur skoðað búið og brunann sem varð þar árið 2010 í tengslum við þáttaröð sína, Neyðarlínuna. Ítarleg umfjöllun um það verður sýnd á Stöð 2 annan fimmtudag.
Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Fleiri fréttir Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Sjá meira