Saka stjórnvöld um að virða alþjóðasamninga að vettugi Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. júlí 2012 09:25
Stjórnvöld gera innflutning á landbúnaðarvörum eins erfiðan og mögulegt er og Samtök verslunar og þjónustu þurfa að nýta flest úrræði sem tiltæk eru að lögum til að knýja á um að farið sé að alþjóðasamningum í þeim efnum. Þetta segja forystumenn Samtakanna, þau Margrét Kristmannsdóttir og Andrés Magnússon í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í dag. Þau segja það jafnframt dapurlegt að allir stjórnmálaflokkarnir á Alþingi virðist jafn áhugalausir um það að virða gerða samninga. „Það hlýtur að teljast fáheyrt að hagsmunasamtök þurfi ítrekað að beita lagalegum úrræðum til þess að knýja á um að stjórnvöld virði samninga sem þau sjálf hafa gert! Það er engu að síður staðreynd málsins. Fullyrða má að staðan væri önnur ef um hefði verið að ræða vörn gegn útflutningshagsmunum þjóðarinnar. Þá hefðu stjórnvöld gengið hart fram fyrir skjöldu til varnar, eins og þau hafa margoft gert. Það er eins og íslensk stjórnvöld gleymi oft að alþjóðasamningar veita réttindi en leggja jafnframt skyldur á báða samningsaðila, ekki aðeins annan þeirra. Og íslensk stjórnvöld geta ekki valið hvaða alþjóðasamninga þau kjósa að virða," segja þau Margrét og Andrés í greininni. Þau benda á að tilgangur þeirra samninga sem hér um ræði sé að efla alþjóðlega samkeppni með landbúnaðarvörur. Að viðskipti milli landa með þessar vörur geti, að hluta til a.m.k., farið fram án þess að lagðir séu á þær óhæfilegir tollar og gjöld. Þetta sé talið mikilvægt til þess að efla almenna hagsæld í heiminum, ekki síst til þess að bæta stöðu hinna vanþróaðri ríkja sem flest byggja afkomu sína á útflutningi landbúnaðarvara.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira