Snorri ætlar að leita stuðnings Kennarasambandsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. júlí 2012 15:21
Snorri Óskarsson, kenndur við Betel, sem var sagt upp störfum sem kennari í Brekkuskóla á Akureyri ætlar að leita eftir stuðningi Kennarasambandsins í máli sínu. Hann segir klárt mál að réttur sinn til að tjá sig hafi verið brotinn, en Snorra var sagt upp störfum eftir skrif um samkynhneigða á persónulegri bloggsíðu. Snorri er ekki búinn að tala við Kennarasambandið eftir að hann fékk uppsagnarbréfið. „Ég er bara búinn að leyfa þeim að fylgjast með áminningarferlinu, en ég er ekki búinn að setja mig í samband við þá eftir að ég fékk bréfið," segir Snorri. Hann spyr hvort ekki sé eðlilegt að hann ræði málið við Kennarasambandið því þar sé hans bakland. Tjáningarfrelsi og skoðanafrelsi séu grundvallaratriði. „Á maður ekki að hafa rétt til að segja hlutina, hvort sem maður er að segja einhverja vitleysu eða ekki? Það fái þá allavega að heyrast mismunandi sjónarmið og mismunandi álit. Það er svo sem enginn neitt öruggur í mörgum málum, um það hvað er hið rétta og hver er hin endanlega niðurstaða," segir Snorri. „Ef við ætlum að þagga niður allar spurningar, umræður, efasemdir og vangaveltur og fullyrðingar, þá held ég að íslenskt samfélag sé komið í svakalega vond mál," bætir hann við. Snorri segir ekki víst hvenær hann mun leita til Kennarasambandsins. „Núna er júlímánuður og sennielga rekst maður á einhverja í sumarleyfi," segir hann. Þá segist Snorri ekki hafa fengið önnur atvinnutilboð. Hann bíði bara eftir þeim. „Eða þá að maður leitar sér annarra leiða. Ég er ennþá rólegur. Það eru ennþá fimm mánuðir til stefnu. En það borgar sig ekkert að bíða í fimm mánuði með það að leita sér að annarri atvinnu," segir Snorri.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira