Innlent

Yfir 200 ökumenn stöðvaðir í umferðarátaki

JHH skrifar
Rúmlega tvö hundruð ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Fimm þeirra reyndust undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að viðkomandi hafði neytt áfengis en var þó undir refsimörkum. Eftirlitið fór fram í miðborginni og við eina af verslunum ÁTVR í austurborginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×