Vilji fyrir breytingum á meðferð kynferðisbrotamála 23. október 2012 11:55 Þverpólitískur vilji er í allsherjar- og menntamálanefnd um breytingar á meðferð kynferðisbrotamála.
Þverpólitískur vilji er í allsherjar- og menntamálanefnd um breytingar á meðferð kynferðisbrotamála. Nefndin fundaði í þriðja sinn um málefnið í dag. Vonast er til að nefndin skili vinnu á þessum þingvetri. „Okkur langaði að fjalla almennt um þessi mál og fá ólík sjónarmið um meðferð kynferðisbrotamála í dómskerfinu," segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður nefndarinnar. „Þessi vinna okkar mun varpa ljósi á það sem betur má fara og hvað við getum gert til að styrkja þessi málefni hjá hverju lögreglustjóraembætti fyrir sig." Fjöldi álitsgjafa hefur komið fyrir nefndina. Í dag sóttu fulltrúar lögreglustjórafélagsins fund nefndarinnar. Áður höfðu aðilar frá lögmannafélaginu, dómstólaráði og fleiri lýst skoðunum sínum á meðferð kynferðisbrotamála. „Þetta hafa verið gagnlegir fundir. Við höfum náð að dekka allar hliðar á þessum málaflokki," segir Björgvin og tekur fram að fundurinn í dag hafi verið sá síðasti í bili. Því næst verður undirnefnd skipuð sem mun sjá um úrvinnslu gagna. „Það er óviðundandi að þessi mál taki jafn langan tíma og raun ber vitni. Við viljum fá að bæta úr þessu og þverpólitískur vilji er fyrir málinu."
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Fleiri fréttir Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Sjá meira