Skemmtiferðaskipum í Íshafi ekki bjargað 17. október 2012 08:00 Í kjölfar þess að skemmtiferðaskipið Costa Concordia sökk í Miðjarðarhafi í janúar á þessu ári vöruðu bresk yfirvöld fólk við siglingum með skemmtiferðaskipum í Norðurhöfum.
Lendi skemmtiferðaskip í hafsnauð norður af landinu er björgun þess ofviða Íslendingum. Þúsundir manna yrðu í lífshættu. Deilt er um þá tillögu að skylda skipin til að sigla saman í pörum svo þau geti komið hvert öðru til aðstoðar. „Miðað við aðstæður og viðbúnað á Íslandi og Grænlandi er nánast útilokað að björgunarskip og þyrlur gætu náð að bjarga hundruðum eða þúsundum manna sem lentu í nauð úti á reginhafi,“ segir um öryggi skemmtiferðaskipa í áhættumatsskýrslu fyrir Ísland. Áhættumatsskýrslan var unnin af þverfaglegum hópi á árinu 2009. Þar var bent á hættu vegna siglinga stórra skemmtiferðaskipa um Norðurhöf. Fram kemur að árekstur við ísjaka annars vegar og sigling í ísreki hins vegar séu helstu hætturnar sem steðji að skipunum. Talsverð hætta sé á slysi á hafsvæðinu milli Íslands og Grænlands. „Í ljósi þessa hafa íslensk og dönsk stjórnvöld leitað leiða til að bregðast við þessari vaxandi hættu. Komið hefur til tals að skylda farþegaskip til að sigla í pörum um hafísslóðir. Þannig væri tryggt að stórt skip væri til reiðu að bjarga fólki ef skemmtiferðaskipi hlekktist á,“ segir í skýrslunni þar sem vandinn er undirstrikaður varðandi skemmtiferðaskipin. „Hlekktist slíku skipi á gætu þúsundir manna lent í lífshættu og björgunaraðgerðir væru Íslendingum ofviða.“ Ólafur Briem hefur fyrir hönd Siglingastofnunar Íslands átt í samskiptum við Alþjóðasiglingamálastofnunina varðandi öryggi farþega á heimskautasvæðum – sem að hluta eru innan björgunar- og leitarsvæðis á ábyrgð Íslendinga. Ólafur segir fyrrnefnda parasiglingu vera eitt margra atriða í umræðunni sem sé ólokið innan Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar. „Útgerðirnar telja ákveðin praktísk vandamál í þessu og það eru uppi sjónarmið um það að ef annað skipið lendir í vandræðum setji það áhöfn hins skipsins í verulega erfiðleika. Björgunaraðgerðir skipa byggja á því að menn bjarga eigin farþegum og skipi. Ef annað skipið strandar eða verður innlyksa í hafís á þá hitt skipið að hætta sér nálægt strandaða skipinu eða inn í ís til að koma því til bjargar?“ nefnir Ólafur sem dæmi um álitamálin sem menn velti fyrir sér. Þá nefnir Ólafur hugmyndir um að setja reglur um það hvert skipin megi sigla eftir því hvernig þau eru útbúin. Ákvæði Alþjóðahafréttarsáttmálans um frjálsar siglingar einfalda þó ekki málið. „Sumir segja að það megi ekki setja skipum nein takmörk, það sé skipstjórans og ábyrgð skipstjórans hverju sinni að ákveða hvað hann treystir sér til að gera. Svo eru aðrir sem segja: Þetta bara gengur ekki – það verður að setja einhver fyrirmæli.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Sjá meira