Einn stærsti listaverkaþjófnaður síðari tíma BBI skrifar 17. október 2012 14:17 Á veggnum í Rotterdam þar sem málverk eftir Henri Matisse hékk áður blasa nú við auðar festingarnar. Mynd/AFP
Málverkum eftir Picasso, Matisse, Gauguin, Monet o. fl. var stolið í gær af safni í Rotterdam í Hollandi. Þjófnaðurinn þykir einn sá tilkomumesti í langan tíma. Menn eru tregir til að smella ákveðnum verðmiðum á verkin sem hurfu en sérfræðingar telja að verðmæti þeirra geti numið tugum milljóna punda. „Þau gætu verið 50 milljón punda virði, eða meira," segir Jop Ubbens, framkvæmdastjóri listaverkasölunnar Christie's í Amsterdam. Fimmtíu milljón pund nema tæpum 10 milljörðum króna. Aðrir hafa nefnt hærri tölur, allt upp undir 200 milljón evrur, rúmir 32 milljarðar íslenskra króna. Lögregla telur þjófana hafa verið vel skipulagða og djarfa þegar þeir stálu sjö verkum í morgunsárið af Kunsthal listasafninu. Talið er líklegt að þjófarnir hafi notað höfnina í Rotterdam til að koma verkunum snarlega úr landi. Áðurnefndur framkvæmdastjóri, Jop Ubbens, telur ekki ólíklegt að verkunum hafi verið stolið eftir pöntun listaverkasafnara „en þá eru þau líklega komin upp á vegg einhvers staðar núna og munu aldrei sjást aftur." Hann telur einnig mögulegt að þjófarnir muni krefjast lausnargjalds fyrir verkin. Aftur á móti telur hann mjög ólíklegt að verkin verði seld á opnum markaði. „Það væri mjög heimskuleg hugmynd," segir hann. Frá þessu er sagt í breska blaðinu The Guardian í dag.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Innlent Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Erlent Fleiri fréttir Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði Sjá meira