Breytinga þörf á húsnæðislánakerfinu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 17. október 2012 18:21
Forseti ASÍ segir að finna þurfi lausn á húsnæðislánakerfi landsins svo að meðalfjölskylda hafi ráð á að búa í meðalíbúð. Hann vill að ríkisstjórnin taki höndum saman með verkalýðshreyfingunni við að breyta kerfinu og lækka vexti. Fertugasta þing Alþýðusambands Íslands hófst í dag og stendur fram á föstudag. Í setningarræðu sinni í morgun tók Gylfi Arnbjörnsson forseti sambandsins sérstaklega fyrir núverandi húsnæðislánakerfi. „Og skiptir eiginlega engu hvort við skoðum óverðtryggðu vextina eða verðtryggðu vextina og er í raun orðið þannig að meðalfjölskylda á vart orðið ráð á því að búa í meðalíbúð lengur og þessu auðvitað verðum við að finna lausn á," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann segir eina lausn vera að fara hina svokölluðu dönsku leið þar sem lánveitendur hafa ekki vaxtaákvörðunarrétt heldur séu vextir ákvarðaðir á skuldabréfamarkaði. „Það auðvitað gengur ekki að íbúðalánasjóður sé að leggja 30 prósenta álag á þá vexti sem hann er að fá á markaði." Þá segir Gylfi verkalýðsfélögin vilja sjá meiri festu í gengismálum til dæmis með að taka aftur upp fastgengisstefnu sem myndi koma böndum á verðbólguna. „Út af verðbólgunni og sveiflum í okkar gjaldmiðli þá er það ljóst að vextir hér eru það mikið hærri að íslensk fjölskylda er í 20 ár lengur að borga sitt húsnæðislán heldur en í nágrannalöndunum. Þetta teljum við vera alveg óviðunandi og viljum að stjórnvöld sameinist um það með okkur að þessu verðum við að breyta."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Sjá meira