Mikill stuðningur við Betra líf 4. nóvember 2012 13:34 Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ.
Hátt í 80 prósent þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Gallup eru hlynnt því að 10 prósent af áfengisgjaldi renni til nýrra úrræða fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og fjölskyldu þeirra. Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir niðurstöðurnar vera í takt við það sem samtökin hafi orðið vör við. „Það er mikill og útbreiddur vilji meðal fólks að ráðist verði í þjóðarátak til að færa þolendum áfengis- og vímuefnavandans betra líf. Stjórnvöld hljóta að bregðast við með viðeigandi hætti. Það er ekki oft sem þau fá jafn skýr skilaboð frá kjósendum.," segir Gunnar. Úrtak könnunarinnar var 150 og 613 svöruðu ekki. Fjöldi svarenda var því 837 eða 57.7 prósent.MYND/GALLUPSamkvæmt könnun Gallup segjast 26,2 prósent landsmanna vera að öllu leyti hlynnt kröfunni, 20,0 prósent mjög hlynnt og 19,8 prósent frekar hlynnt. Hins vegar segjast 7,7 prósent vera að öllu leyti andvíg kröfunni, 4,6 prósent mjög andvíg og 5,9 prósent frekar andvíg. Samtals sögðust því 66,0 prósent vera fylgjandi kröfunni, 18,2 prósent voru andvíg henni en 15,9 prósent tóku ekki afstöðu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 78,4 prósent fylgjandi kröfunni en 21,6 prósent andvíg henni. Meðal sveitarfélaga sem lýst hafa yfir stuðningi við kröfur SÁÁ eru Reykjanesbær, Árborg og Fljótsdalshérað. Í morgun höfðu um 22.500 landsmanna skrifað undir kröfuna um Betra líf! á vefsvæði SÁÁ, saa.is. Þá segir Gunnar að búast megi við því að undirskriftirnar fari yfir 10 prósent af kosningabæru fólki á morgun eða allra næstu daga. „Við munum safna undirskriftum út þessa viku og hugsanlega lengur," segir Gunnar Smári. "Á sama tíma vonumst við eftir viðbrögðum frá ríkisstjórn og Alþingi. Það hefur myndast almennur og breiður stuðningur við þessa réttlátu mannúðarkröfu og stjórnvöld hljóta að bregðast skjótt við," segir Gunnar.
Mest lesið „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Sjá meira