Innlent

Virði vörumerkisins Ísland fer vaxandi

Erla Hlynsdóttir skrifar
Virði Íslands sem vörumerkis fer vaxandi á næstu árum, samkvæmt alþjóðlegri úttekt. Samkvæmt henni virðist smæð þjóðarinnar aftra henni frá áhrifum á heimsvísu.

Fyrirtækið FutureBrand hefur áttunda árið í röð sent frá sér úttekt á löndum heimsins þar sem þau eru metin líkt og þau væru vörumerki.

Matið er byggt á upplýsingum frá á fjórða þúsund áhrifamikilla álitsgjafa og fólki sem ferðast mikið, hvort sem er vegna vinnu eða skemmtunar.

Samkvæmt matinu er Sviss verðmætasta vörumerkið, og er tekið fram að þar ríki efnahagslegur stöðugleiki, ólíkt ýmsum evrópulöndum.

Ísland er í 22. sæti á listanum yfir verðmætustu vörumerkin, en listinn tekur til yfir hundrað landa. Ísland fellur um þrjú sæti milli ára en bjartari tímar eru framundan því Ísland kemst á lista yfir þau 15 lönd sem skipta mestu í framtíðinni, samkvæmt spá FutureBrand.

Á toppnum tróna Sameinuðu arabísku furstadæmin. Ísland er í sjöunda sæti á þessum lista. Það sem kom þjóðinni þangað er að FutureBrand spáir því að Ísland komist brátt í fyrsta sæti þegar kemur að stjórnarháttum, fjárfestingum og mannauði. Þá er Íslandi spáð tuttugasta sæti þegar kemur að vexti, 26. sæti í sjálfbærni og 22. þegar kemur að áhrifum.

Í umsögn segir meðal annars að Íslendingar séu ein hæfasta og menntaðasta þjóð í heimi. Þá segir að landið sé einskonar míkrómódel fyrir samfélag í jafnvægi. Þrátt fyrir mikla kosti þá verður smæð þjóðarinnar hins vegar til þess að hún verður aldrei jafn áhrifamikil og lönd á borð við Kína og Indland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×