Innlent

Margar tilkynningar til tryggingafélaga vegna óveðursins

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Tryggingafélögin hafa tekið við á þriðja hundrað tjóna tilkynningum vegna óveðursins á föstudaginn. Flestar tilkynningar eru vegna skemmda á fasteignum en fokin trampólín og garðhúsgögn fást ekki bætt.
Tryggingafélögin hafa tekið við á þriðja hundrað tjóna tilkynningum vegna óveðursins á föstudaginn. Flestar tilkynningar eru vegna skemmda á fasteignum en fokin trampólín og garðhúsgögn fást ekki bætt. Mynd/Anton Brink
Tryggingafélögin hafa tekið við á þriðja hundrað tjóna tilkynningum vegna óveðursins á föstudaginn. Flestar tilkynningar eru vegna skemmda á fasteignum en fokin trampólín og garðhúsgögn fást ekki bætt.

Miklar skemmdir urðu á eignum í óveðrinu sem gekk yfir landið á föstudag og hafa tryggingafélög haft í nógu að snúast að taka við tjónatilkynningum í dag.

„Það hefur verið þó nokkuð um tilkynningar, þær eru mismunandi að stærð og umfangi - allt frá því að vera fokið hurðir eða opnanleg þök á húsum upp í það þar sem þökin hafa fokið af í heilu lagi og jafnvel veggir gefið sig líka," segir Þorsteinn Þorsteinsson, deildarstjóri í eignatjónadeild VÍS.

Hann segir marga hafa hringt til að spyrjast fyrir um rétt sinn meðal annars vegna tjóns á innbúi, en innbú er almennt ekki foktryggt utan húss nema um ófyrirsjáanlegan atburð sé að ræða.

„En nú hefur verið búið að vara við þessu veðri þó nokkuð mikið undanfarið og þarna er ekki um neitt ófyrirsjáanlegt atvik að ræða, þó að það fjúki trampólín eða garðhúsgögn - það er eitthvað sem að viðskiptamenn fá því miður ekki bætt núna."

Alls voru rúmlega fimmtíu eignatjón tilkynnt til VÍS í dag, þá voru um þrjátíu tilvik tilkynnt til Varðar og um fjörutíu höfðu borist Sjóvá. Tryggingamiðstöðinni fékk hátt í áttatíu tilkynningar vegna eignatjóns auk nokkurra tuga tjóna á bílum. Alls eru þetta því á þriðja hundrað tilkynningar í dag og á Þorsteinn von á að fleiri muni berast á næstu dögum.

„Það sem við erum búin að fá nú þegar er upp á einhverja tugi milljóna, þetta er ekki stóratburður í sögulegu samhengi en þetta er tilfinnanlegt veður samt sem áður," segir Þorsteinn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×