Karlar í kvennaklefa 16. nóvember 2012 06:30 Nú standa yfir endurbætur á karlaklefanum í Laugardalslaug. Á meðan hefur kvennaklefanum verið skipt í tvennt og karlar fengið þar inni. Fréttablaðið/vilhelm
Vegna endurbóta á karlaklefanum í Laugardalslaug hefur helmingur kvennaklefans verið stúkaður af fyrir karla. Framkvæmdum lýkur um mitt næsta ár. Karlkynsgestir Laugardalslaugar hafa nú í rúma viku haft helming kvennaklefans til afnota þar sem verið er að endurnýja búningsklefa þeirra. Búist er við því að röskun verði næstu mánuði en Logi Sigurfinnsson, forstöðumaður laugarinnar, segir gesti hafa sýnt breytingunum mikinn skilning. Endurbætur á lauginni hafa staðið yfir um nokkra hríð en áætlað er að þeim ljúki fyrir mitt næsta ár. Logi segir að nú sé rétti árstíminn til að ganga í þessi mál, enda sé aðsóknin „ekki nema“ um 40 þúsund manns á mánuði. „Við stefnum að því að klára karlaklefann fyrir lok janúar og það er unnið hörðum höndum að því. Eftir það verður farið í að endurnýja kvennaklefann,“ segir Logi. Fólk hafi einnig nýtt sér nýju útiklefana en þar eru 70 skápar, bæði fyrir konur og karla. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var nokkuð spennufall meðal þeirra karla sem hafa nýtt sér þessi fyrrum helgu vé. Þar sé afar svipað umhorfs og í karlaklefunum gömlu. Meira að segja baðvogin Fröken Halldóra, sem þjónað hefur karlgestum um árabil, hefur verið færð yfir. Þetta eru ekki einu breytingarnar í laugunum því að þar til karlaklefinn verður fullbúinn hefur afgreiðslu sundlaugarinnar verið lokað og gamla afgreiðslan norðan megin í húsinu tekin í notkun á ný. Logi segir laugargesti hafa sýnt einstaka biðlund á meðan framkvæmdum hefur staðið. „Fólk hefur verið ótrúlega jákvætt. Við vorum til dæmis að brjóta allt og bramla hérna úti síðasta vetur og fólk fjölmennti þrátt fyrir það á hverjum degi. Gestirnir sýna þessu svo mikinn skilning því að þeir átta sig á þörfinni á endurbótunum.“thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira