Innlent

Léttasti 35% undir þyngd

Alls voru 35 prósent sýna af Glaðningi utan leyfilegra frávika frá tilgreindri þyngd þegar Neytendastofa gerði könnun á þyngd forpakkaðra osta í verslunum. Skoðaðar voru tvær vörutegundir, 100 g Bóndabrie frá Mjólkursamsölunni hf. og 130 g Glaðningur frá Mjólkurbúinu ehf.

Við mælingar kom í ljós að Bóndabrie uppfyllti kröfur um þyngd. Léttasta sýnið af Glaðningi reyndist aðeins 83 g í stað 130 g eða 35 prósentum undir þyngd. Einstaka sýni voru yfir meðalþyngd. Þyngsta sýnið var 58 prósent yfir tilgreindri þyngd. Á vef Neytendastofu er bent á að leyfilegt sé að yfirpakka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×