Innlent

Brýr úr landi að odda Geirsnefs

GAR skrifar
Brýr munu opna gangandi fólki og hjólreiðamönnum nýja leið.Fréttablaðið/
Brýr munu opna gangandi fólki og hjólreiðamönnum nýja leið.Fréttablaðið/
Borgarráð samþykkti í gær að ný hjóla- og gönguleið yfir Elliðaárósa yrði opnuð 3. maí á næsta ári. Með þessu styttist vegalengd hjólandi og gangandi milli Grafarvogs og miðborgar um 700 metra.

„Byggðar verða tvær göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa, þær tengdar við stígakerfið og lagður göngu- og hjólastígur milli þeirra yfir norðurenda Geirsnefs,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar. Fram kemur að brýrnar tvær verði um 36 metra langar og breidd brúargólfs þeirra um 4,5 metrar. Þá segir að nýja hjóla- og gönguleiðin verði aðskilin frá hundasvæðinu með girðingu þvert yfir Geirsnefið.

Verkið á að kosta um 230 milljónir króna sem skiptast milli Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×