Engin breyting á afstöðu til NATO ÞJ skrifar 2. nóvember 2012 08:00 Þátttaka Finnlands og Svíþjóðar í loftrýmisgæslu Íslands heyrir til tíðinda, enda eru þau ekki í NATO. Fréttablaðið/vilhelm
Utanríkisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar segja viljayfirlýsinguna um þátttöku í loftrýmisgæslu Íslands í samstarfi við Noreg ekki fela í sér breytingu á afstöðu til eða samstarfi við NATO. Ríkin eru ekki meðlimir í bandalaginu og hafa ekki tekið þátt í viðlíka verkefnum áður. „Við höfum gert það ljóst að loftrýmisgæsla Finnlands við Ísland er ekki til marks um breytt viðhorf eða samstarf við NATO. Það er algerlega útilokað,“ hefur Hufvudstadsbladet í Finnlandi eftir Erkki Tuomioja, utanríkisráðherra Finnlands. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, tekur í sama streng og segir verkefnið í líkingu við eftirlit sem flugherir ríkjanna sinna nú þegar í sameiningu yfir Lapplandi, Finnmörku og Norður-Svíþjóð. Það eina sem breytist sé staðsetningin. „Svíar og Finnar geta ekki og munu ekki taka yfir verkefni NATO á Íslandi,“ sagði Bildt. Sænskar og finnskar flugvélar munu taka þátt í loftrýmisgæslunni þegar hún er á höndum Norðmanna, en slíkt ber næst upp á vorið 2014. Komi til þess að óboðinn gestur stefni til Íslands mega Svíar og Finnar einungis ljósmynda og reyna að bera kennsl á viðkomandi flugvél. Gerist frekari aðgerða þörf verður það á könnu Norðmanna að bregðast við. Nánari útfærsla á verkefnum liggur ekki enn fyrir, enda á NATO eftir að taka málið fyrir og þjóðþing ríkjanna munu svo samþykkja verkefnið að lokum.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira