Nota gervitunglamerki til þorskrannsókna SHÁ skrifar 2. nóvember 2012 08:00 Jóhannes og Erlendur Geirdal við merkingar á þorski sem hafa skilað áhugaverðum niðurstöðum.mynd/laxfiskar
Rannsóknafyrirtækið Laxfiskar og samstarfsaðilar hafa tekið í notkun nýja tækni sem gerir kleift að fylgjast með ferðum þorska við Ísland. Tæknin byggir á fiskmerkjum sem senda upplýsingar um ferðir fiskanna um gervitungl. Þannig fást gögn um hegðun og umhverfi fiskanna án þess að endurveiða fiskana, sem er nýjung í þorskrannsóknum. Slík gögn gefa meðal annars nýjar hagnýtar upplýsingar um þorskinn þegar hann dvelur utan veiðislóðar. Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum segir að merkin séu á ýmsan hátt sambærileg þeim sem notuð hafa verið til hvalarannsókna, en gögnin frá gervitunglafiskmerkjunum skila sér hins vegar á þann hátt að merkin losa sig af fiskunum á fyrir fram ákveðnum tíma og fljóta upp í yfirborð þar sem þau geta fyrst náð sambandi við gervitungl ARGOS-gervitunglakerfisins. Um gervitungl berast þannig mæligögn yfir fiskdýpi á farleiðinni hverju sinni, sem og sjávarhita og birtumagn. Fyrstu niðurstöður rannsókna sem hófust í vor lofa góðu. „Vænir hrygningarfiskar sem merktir voru í Faxaflóa hafa meðal annars komið fram bæði sunnan við land og norðan, allt að 600 kílómetrum frá merkingarstaðnum,“ segir Jóhannes. Laxfiskar kynna rannsóknina á þorskinum, ásamt öðrum rannsóknum, á opnum fundi á þriðjudaginn kemur í Víkinni – Sjóminjasafninu, Grandagarði.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira