Innlent

Ekki skjóta trén á Skagaströnd

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Mynd/Tyler
Sveitarfélagið Skagaströnd og Skógræktarfélag Skagastrandar skora á rjúpnaveiðimenn að stunda veiðarnar utan skógræktarsvæðisins í Spákonufellsborg.

„Síðastliðið sumar var mjög augljóst að talsvert af þeim viðkvæma trjágróðri sem þar er að vaxa upp hafði orðið fyrir haglaskotum og skemmst vegna þess," segir í ákalli á heimasíðu sveitarfélagsins undir fyrirsögninni: Ekki skjóta tré!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×