Innlent

Skipulagið er í ólestri

Arna Lára Jónsdóttir
Arna Lára Jónsdóttir
Skipulag strandsvæða og starfsemi á þeim heyrir sem stendur undir fjögur ráðuneyti og ellefu stofnanir, að því er fram kom í svari Svandísar Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi fyrir helgi.

Fram kom í fyrirspurn Örnu Láru Jónsdóttur, varaþingmanns Samfylkingarinnar fyrir Ólínu Þorvarðardóttur, að hún teldi nýtingu og skipulag þessara svæða eiga að vera á forræði sveitarfélaga, líkt og aðalskipulag.

Svandís sagði skipulag strandvæða hafa verið í ólestri en taka ætti á því í nýrri landsskipulagsáætlun sem væri í kynningu, sem og með stefnumótun og frumvarpsgerð í samráði ráðuneyta sem með málin færu.- óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×