Innlent

Nýr vefur dregur fram hvað fólk vill vita

Rakel Sveinsdóttir er framkvæmdastjóri Spyr. Hún segir að almenningur hafi látið mjög sterklega í sér heyra strax í fyrstu vikunni.
Rakel Sveinsdóttir er framkvæmdastjóri Spyr. Hún segir að almenningur hafi látið mjög sterklega í sér heyra strax í fyrstu vikunni. fréttablaðið/anton
„Við erum að draga fram hvað það er sem fólk vill fá að vita meira um í kjölfar frétta,“ segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Spyr, sem fór í loftið þann 6. október síðastliðinn. Spyr er að sögn Rakelar fyrsti miðillinn sem sérhæfir sig sem upplýsingamiðil, eða miðil fólksins.

Á vef Spyr getur fólk sent inn spurningar um fréttir allra helstu fjölmiðla landsins. Stjórnendur vefsins þurfa svo að samþykkja spurninguna og í kjölfarið sjá blaða- og fréttamenn og fyrirtæki í þjónustu Spyr spurninguna og geta svarað henni eða nýtt hana með öðrum hætti. „Fókusinn okkar verður alltaf sá að hlusta eftir því hvað það er sem fólk er að segja. Við þekkjum öll að fréttir eru að færast inn á samfélagsmiðlana og fólk talar um það þar. Til langs tíma litið er þetta hugsað þannig að Spyr verði á endanum ákveðið afl sem lætur vita hvað það er í þessu fréttaflóði sem fólk er að leggja áherslu á.“

Markmiðið er að auka á gagnsæi og góða upplýsingamiðlun fyrir almenning, enda hafa kröfur um það verið háværar undanfarið að sögn Rakelar.

Að auki er hægt að birta jákvæðar fréttir og fyrirtækjafréttir á vef Spyr. Að sögn Rakelar gegnir Spyr þannig hlutverki milliliðar og almenningur getur séð efni beint frá fyrirtækjum.

- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×