Finnar jákvæðir en Svíar ekki ákveðnir 15. október 2012 00:00 Loftrýmisgæsla Íslands verður rædd á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í lok mánaðarins. fréttablaðið/gva
Finnar eru mjög jákvæðir fyrir því að stunda loftrýmisgæslu á Íslandi í samstarfi við Svía og Norðmenn. Þeir bíða hins vegar eftir ákvörðun Svía um málið. Sameiginleg loftrýmisgæsla þessara ríkja verður rædd á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í tengslum við Norðurlandaráðsfund um næstu mánaðamót, segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Hann segir ekkert endanlega ákveðið um málið. "Þetta hefur verið rætt nokkrum sinnum á utanríkisráðherrafundum Norðurlandanna og svo hafa Finnar og Svíar lýst því yfir að þeir séu jákvæðir gagnvart þessu og séu að velta því fyrir sér með hvaða hætti væri hægt að koma því við. Svo ég viti þá er ekki endanleg afstaða hjá Svíum komin fram," segir Össur. Norrænu ríkin myndu ekki hefja loftrýmisgæslu fyrr en árið 2014. Það verður þá í fyrsta skipti sem Finnar og Svíar taka virkan þátt í hernaðarsamstarfi í Nató-ríki, segir í umfjöllun Aftenposten um málið, þótt ríkin þrjú hafi staðið sameiginlega að flugæfingum í norðurhluta ríkjanna. Það var Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs, sem gerði skýrslu um utanríkis- og öryggismál árið 2009 þar sem þetta var meðal tillagna. - þeb
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Erlent Fleiri fréttir Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Sjá meira