Staðbundin undanþága möguleiki 15. október 2012 00:00 Á fallegum haustdegi getur verið gaman að gefa álftum, gæsum og öndum við Tjörnina í Reykjavík. Álft og gæs eru hins vegar ekki aufúsugestir til sveita þar sem fuglinn veldur sums staðar stórtjóni. Fréttablaðið/Anton
Enn er unnið að söfnun upplýsinga vegna ágangs af völdum álfta og gæsa á ræktarlönd. Að gagnaöfluninni standa umhverfisráðuneyti, Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands og Bændasamtök Íslands, að því er fram kemur í svari Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanns Framsóknarflokks, á Alþingi í lok ágúst. "Þessi vinna er bara í gangi," segir Steinar Rafn Beck Baldursson, sérfræðingur á sviði náttúruauðlinda hjá Umhverfisstofnun. Hann kveðst hins vegar ekkert geta sagt til um hvenær gagnaöfluninni kunni að ljúka. Komið hefur fram að ágangur andfugla í ræktarlönd hefur hrakið bændur frá því að rækta korn. Þá hafa bændur farið þess á leit að fá að skjóta fugla til þess að fæla þá frá ræktarlöndum. Steinar segir ólíklegt að tekin verði ákvörðun um að heimila einhverjar slíkar aðgerðir fyrr en að fengnum niðurstöðum könnunarinnar á umfangi tjóns eftir fuglinn. "Svo er líka verið að skoða hvað gert hefur verið í öðrum löndum," segir hann. Í svari sínu á þingi segir umhverfisráðherra ástæðu til að fylgjast með beitarálagi af völdum gæsa og álfta, bæði á ræktarlöndum og náttúrulegum svæðum. Þá eigi að bregðast við að fengnum betri upplýsingum um ágang af völdum gæsa og álfta. "Ákvæði laga veita umhverfisráðherra ekki leyfi til þess að aflétta friðun álfta en ráðherra hefur þó heimild til þess að veita staðbundna undanþágu frá lögunum til að bregðast við tjóni," segir í svari ráðherra. Þar kemur einnig fram að álftastofninn hafi stækkað úr sautján þúsund fuglum árið 1986 í 29 þúsund fugla árið 2010. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira