Hrefna var komin allt að Kanaríeyjum 28. ágúst 2012 11:00 Gísli Víkingsson tilbúinn með merkinguna Verið er að þróa þessar merkingar og bindur Gísli vonir við að merkin vísi þeim á vetursetur skíðishvalanna. fréttablaðið/gva
Örar breytingar hafa átt sér stað í hafinu þangað sem Íslendingar sækja að mestu leyti hagsæld sína. Til dæmis hefur hátterni hrefnunnar að mörgu leyti komið mönnum á óvart í sumar. Hafrannsóknastofnun undirbýr nú merkingar á hvölum og vonast til að getað komist að því hvar þeir halda til á veturna. Aftur er krökkt af hrefnu í Faxaflóanum eftir frekar dapran júlímánuð að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar framkvæmdastjóra Félags hrefnuveiðimanna. Segir hann að svo hafi virst sem makríllinn hafi flæmt margar þeirra úr flóanum fyrr í sumar. Jafnvel þó svo að þekkt sé að hrefnan leggi sér makrílinn til munns segir hann hana fremur kjósa að halda til þar sem von kunni að vera á síli eða öðru góðgæti. Þar fyrir utan mun makríllinn vera afar hraðsyndur fiskur, sem gerir að verkum að það kostar hrefnuna mikla orku að koma honum í vömb. Á Magnúsi Gunnþórssyni, skipstjóra hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingunni, má einnig skilja að meira sé af hrefnu nú í ágúst en verið hafi í júlí, þó svo að makríllinn sé enn á ferðinni. Skipstjórinn fagnar ekki innreið makrílsins sem sópar upp flóann en segir hafa verið bót í máli að grindhvalir hafi verið þar á svamli í sumar, ferðafólki til mikillar ánægju. „Ég hef verið hérna í fimm ár og þetta er í fyrsta sinn sem ég sé þetta," segir Magnús. Með sníkjudýr frá heitara hafiAuk breytinga á hátterni hafa komið upp fleiri hlutir sem vekja spurningar um hvað hrefnurnar hafast að í hafinu. „Við veiddum tvo tarfa nýlega sem enn voru með sníkjudýr á sér," segir Gunnar. „Það gæti stafað af því að nú séu að koma inn í íslenska lögsögu dýr, en það er nýlunda að þau komi hingað svona seint. Við erum því jafnvel að vonast eftir því að það verði þeim mun meira af þeim núna það sem eftir lifir sumars og til októberloka." Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir tilvist sníkjudýranna í hvölunum markverða þar sem almennt sé það talið merki um að hrefnan sé nýkomin þegar hún finnst með þessi sníkjudýr. „En það er þó ekki útilokað að önnur skýring geti legið þar að baki," segir Gísli. „Við vitum til dæmis ekki með vissu hversu lágt hitastig þessi sníkjudýr þola, kannski eru þau farin að þrauka lengur vegna hlýnunar hér," bætir hann við. Hvert fara skíðishvalirnir?Nú er Hafrannsóknastofnun að undirbúa merkingar á hvölum en það er torveldara verk en margir gætu haldið. „Það er náttúrlega ekki hægt að hengja á þá hálsól eins og á mörg önnur dýr," segir Gísli í gamansömum tón. Skjóta þarf merkingunni í dýrið úr sérútbúinni loftbyssu sem er mun erfiðara verk þegar kemur að hrefnunni, en auðveldara með hnúfubaka og steypireyðar sem eru stærri, silalegri og yfirleitt gæfari skepnur. Rannsóknir þessar, sem byggjast á merkingum með gervitunglasendum, hafa nú þegar varpað nýju ljósi á ýmsa þætti er tengjast viðveru og fartíma hvala við landið. Þá hafa rannsóknirnar gefið fyrstu vísbendingar um aðsetur hrefnu að vetrarlagi. Verið er að þróa þetta rannsóknartæki og vonast Gísli til þess að þeir missi síðar sjónar á merktum hvölum en raunin hefur verið undanfarin ár. Þó eru dæmi um að tekist hafi að rekja leið hnúfubaks til Karabíska hafsins og síðan var hrefna komin skammt frá Kanaríeyjum, undan austurströnd Afríku, þegar samband rofnaði. Þá var komið fram í desember. Vísindamenn bíða því spenntir efir því að sjá hvaðan næstu sendingar gervitunglasendanna berast.
Fréttir Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Sjá meira