Tillaga geti fallið vel að byggð 25. júlí 2012 06:00 Mynd af verðlaunatillögu ASK arkitekta, sem húsafriðunarnefnd segir að geti fallið vel að byggðinni sem fyrir er. mynd/ask arkitektar
Húsafriðunarnefnd telur að vinningstillaga um skipulag í umhverfi Ingólfstorgs geti í stórum dráttum fallið vel að núverandi byggð á svæðinu. Þetta kemur fram í bókun nefndarinnar. „Ekki er gert ráð fyrir neinni tilfærslu á varðveisluverðum timburhúsum á svæðinu heldur að byggt verði í bilin milli húsanna. Það er talið eðlilegt og jafnvel eftirsóknarvert að nýta auð svæði í miðborginni og styrkja þannig heildarmynd svæðisins,“ segir í bókuninni. Þá segir jafnframt að til að vel takist til sé mikilvægt að fullt tillit verði tekið til aldurs og gerðar gömlu timburhúsanna við útfærslu á millibyggingum við Vallarstræti. „Þannig geta millibyggingarnar styrkt sögulegt gildi gömlu húsanna og umhverfið orðið bæði áhugaverðara og fallegra.“ Þá segir nefndin að viðbygging við Landsímahúsið gæti afmarkað rými Austurvallar og Víkurgarðs með skýrari hætti en nú er auk þess að afmarka göturými Kirkjustrætis. Það sé þó háð útfærslu framhliðar hússins. Nefndin telur ekki að salurinn sem hýst hefur Nasa geti talist til þjóðminja og því sé ekki tilefni til að friða hann. Því er hins vegar beint til borgarinnar að skoða að hverfisvernda hann. Þá tekur húsafriðunarnefnd ekki afstöðu til fyrirhugaðrar nýbyggingar á Ingólfstorgi. - þeb
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira