Hefðu fært gömlu húsin á Ingólfstorg 19. júlí 2012 04:30 Gömlu húsin við Vallarstræti 4 og Aðalstræti 7 hefðu verið færð saman og inn á Ingólfstorg. Í staðinn er gert ráð fyrir að söluskálar við hinn enda torgsins fari og torgið stækki þeim megin. Mynd/kanon arkitektar
Tillagan sem lenti í öðru sæti í samkeppni um Ingólfstorg og Kvosina gerði ráð fyrir því að gömul hús við Ingólfstorg yrðu færð inn á torgið og nýbygging kæmi í þeirra stað. Myndu líka byggja við Kirkjustræti og endurbyggja Nasa. Allar verðlaunatillögurnar í samkeppni um Ingólfstorg og Kvosina gerðu ráð fyrir því að breyta Ingólfstorgi og nota hluta þess undir byggingar. Tillagan sem lenti í öðru sæti í samkeppninni kom frá Kanon arkitektum. Í henni er gert ráð fyrir því að Landsímahúsið verði notað undir hótel og við það byggðar nýbyggingar bæði við Kirkjustræti, eins og í tillögu ASK arkitekta sem var í fyrsta sæti, og við Vallarstræti. Þá er gert ráð fyrir því, eins og í verðlaunatillögunni, að salurinn sem hýsir Nasa verði endurbyggður í svipaðri mynd. Einn veigamesti munurinn á tillögunum tveimur er að í tillögunni frá Kanon arkitektum er gert ráð fyrir því að húsin sem nú standa við Vallarstræti, Vallarstræti 4 og Aðalstræti 7, verði færð fram á Ingólfstorg og nýbygging verði byggð þar sem þau standa nú. Í greinargerð Kanon arkitekta kemur fram að með því að færa húsin fram á Ingólfstorg sé verið að nýta skuggsælasta hluta þess til uppbyggingar. Í staðinn yrðu húsin við hinn enda torgsins, þar sem nú eru skyndibitastaður og ísbúð, fjarlægð. Þá myndi flutningurinn styrkja götumyndina og mynda heilsteypta umgjörð torgsins ásamt öðrum eldri húsum þar. Í tillögu Kanon er gert ráð fyrir nýbyggingu við Kirkjustræti, líkt og í tillögu ASK arkitekta. Húsið væri þó ekki hluti hótelsins. Dómnefndin taldi það ókost við tillöguna að bygging hótelsins væri alfarið háð uppbyggingu á Ingólfstorgi og flutningi húsanna fram á torgið. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Sjá meira