Forystukonu illa við vínsölu á Hrafnistu 19. júlí 2012 04:30 Glæsilegur borðsalur í eins konar bókakaffisstíl verður opnaður á Hrafnistu í haust. Þar verður selt áfengi til klukkan átta á kvöldin. Mynd/Hrafnista
Formanni Landssambands eldri borgara er illa við áformaða áfengissölu á Hrafnistu. Formaður Samtaka aldraðra segir að ekki megi hefta eldri borgara. Málið sé þó viðkvæmt því sumum öldruðum sé hætt við misnotkun á áfengi. „Mér finnst þetta ekki vera hlutur sem verður til þess að eldri borgurum líði vel,“ segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, um fyrirhugaða áfengissölu á Hrafnistu í Reykjavík. Eins og Fréttablaðið skýrði frá í gær er verið að breyta borðsal heimilisfólks á Hrafnistu í kaffihús þar sem hægt verður að kaupa bjór og vín. „Ég er nú bindindismanneskja í eðli mínu og finnst þetta dálítið furðulegt og skil þetta ekki almennilega,“ segir Jóna sem kveðst ekki hafa heyrt af málinu fyrr. „Hins vegar hef ég heyrt frá Vogi að það hafi aukist að það séu eldri borgarar sem þurfi þar að leita sér aðstoðar,“ segir Jóna. Til stendur að opna sérstaka deild fyrir aldraða þar. Erling Garðar Jónasson, formaður Samtaka aldraðra, segir málið viðkvæmt. „Á öllum aldursskeiðum þurfum við að hafa visst frjálsræði og aðgengi að samfélaginu. Það er grundvallaratriði en aðgangur að áfengi í óheftum mæli getur fyrir suma verið mjög óheppilegt. Þess vegna þarf að fara varlega,“ segir Erling og undirstrikar að mannréttindi þessa hóps séu í húfi. „Við skulum heldur ekki gleyma því að fólk fer bara og nær í áfengi ef það vill það. Ef það kemst ekki sjálft þá sendir það leigubíl eftir því. Þá verður neyslan meiri og erfiðari og meiri leyndarhjúpur yfir henni,“ segir Erling. Jóna segist telja ýmislegt mikilvægara fyrir eldri borgara að gera en að hefja vínsölu á hjúkrunarheimilum. „Kaffihús væri allt í lagi að setja upp. Fólki finnst oft gaman að setjast niður saman og fá sér kaffi en það slær mig frekar illa að það sé vínveitingaleyfi þar,“ segir Jóna. Erling minnir á að einangrun gamals fólks sé oft mikil. „Þá leita sumir á náðir lyfja eins og áfengis til að eyða tímanum eða lina þjáningar,“ segir hann og vill gefa hugmyndinni á Hrafnistu tækifæri. „Við skulum leyfa þeim að prófa. Þeir eru með hjúkrunarlið á heimsmælikvarða þannig að það er gætt að hverjum einasta sjúklingi mörgum sinnum á dag.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira