Bjóða upp á áfenga drykki á Hrafnistu 18. júlí 2012 12:00 „
Við erum bara að auka þjónustuna við fólkið okkar," segir Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu í Reykjavík, sem sótt hefur um vínveitingaleyfi fyrir kaffihús sem opnað verður í dvalarheimilinu í sumarlok. Um er að ræða nýjung sem á aðeins við um dvalarheimili Hrafnistu í Reykjavík. „Við erum að endurnýja matsal heimilismanna og gera þar kaffihúsastemningu. Þar geta heimilismenn, þeirra gestir og aðrir keypt sér vín með mat og öðru ef þeir hafa áhuga á," útskýrir forstjórinn. Sækja þarf um leyfi til að selja áfengi og það mál er nú í sínu ferli. Skipulagstjórinn í Reykjavík segir fyrir sitt leyti engar skipulagslegar forsendur í veginum. „Með þessu geta Pétur og Páll dottið inn og heimsótt sitt fólk og farið með því í kaffi því að margir af okkur heimilismönnum eru í þannig ástandi að þeir eiga mjög erfitt með að fara út í bæ á kaffihús. Það er okkar stefna að hafa sem fjölbreyttasta þjónustu fyrir okkar fólk og aðra sem hér eru," segir Pétur. Sem fyrr segir er um nýjung að ræða og forstjórinn segir í raun um ákveðna byltingu að ræða. „Við erum með ýmsar hátíðir og skemmtanir með heimilismönnum. Þá er kannski fínn kvöldverður og skemmtiatriði og þá er gaman að því að fólkið geti fengið sér léttvín og bjór með matnum. Og ef heimilismenn vilja setjast út í sólina með rauðvín þá er það bara hið besta mál," segir forstjórinn. Að sögn Péturs er áætlað að matsalurinn gamli opni sem nýtt kaffihús í lok ágúst eða byrjun september. Salurinn er nú lokaður í nokkra mánuði á meðan verið er að endurnýja innréttingar og annað þar innanstokks. Fréttablaðið hefur sagt frá því að áfengisneysla eldri borgara hafi aukist töluvert á undanförnum árum. Pétur kveðst ekki hafa áhyggjur af þessu í sambandi við vínveitingar á Hrafnistu. „Við fylgjumst með því hjá okkar heimilisfólki og ef þetta verður virkilegt vandamál þá skoðum við það með viðkomandi. Við höfum ekki fengið neinar athugasemdir ennþá heldur bara ánægju þar sem við höfum kynnt þetta," segir forstjóri Hrafnistu. - gar
Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fleiri fréttir „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Sjá meira