Erfitt að tæma ósamþykkta brunahúsið 4. maí 2012 06:00 Sluppu vel Fjórir íbúar hússins við Vesturvör voru fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í fyrrinótt. „
Við tæmum yfirleitt svona hús en þarna er leigusamningur í gildi þannig að við getum í rauninni ekki tæmt það,“ segir Magnús Steinþór Pálmarsson, talsmaður eignaumsýslufélagsins Dróma, um ósamþykkt íbúðarhúsnæði að Vesturvör 27 í Kópavogi, þar sem eldur kom upp í fyrrinótt. Tilkynnt var um eld í húsinu á þriðja tímanum í fyrrinótt og gekk greiðlega að slökkva hann. Engu að síður voru fjórir fluttir á slysadeild til skoðunar. Alls eru fjörutíu manns skráðir til heimilis í húsaþyrpingunni að Vesturvör 27. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, sagði í fjölmiðlum í gær að til greina hefði komið að loka húsinu fyrir nokkrum misserum en það hefði þó ekki þótt nógu hættulegt til að orðið hafi af því. Magnús segir að erfitt geti verið að losa húsnæði þegar fólk er með leigusamning. Samningarnir séu þó að renna út. „Okkar stefna er að tæma allt svona húsnæði, sem telst ekki vera mannabústaðir. Við stundum ekki að leigja út iðnaðarhúsnæði undir heimilishald,“ segir hann. Engu að síður geti tekið tíma að rýma húsnæðið ef leigjendurnir fara ekki. Þá þurfi útburð og hann geti tekið marga mánuði. Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar, segir stjórnvöld lengi hafa glímt við þau vandamál sem fylgja ósamþykktu íbúðarhúsnæði. Þau séu hins vegar margflókin og torleyst og tengist mörgum málaflokkum. Þá geti slíkt húsnæði verið mjög mishættulegt. Almennt hafi það verið stefnan að henda fólki ekki út á gaddinn. - sh
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira