Búktal fyrir þjóðarhag Jónas Bjarnason skrifar 1. maí 2012 06:00 Fiskveiðar eru okkur Íslendingum hjartans mál og hafa verið frá ómunatíð. Og síðustu áratugina erum við langt í frá sammála um hvernig fiskveiðum skuli háttað. Kvótakerfið var lögleitt 1984 og takmarkaði það aðgengi að fiskiauðlindinni sem fram að því var óhindruð. Byggðist kerfið annars vegar á áformum um fiskvernd og hins vegar á tekjutilkalli þeirra útgerða sem voru fyrir. Litlar deilur hafa verið um fyrrnefnda atriðið en því mun meiri um hið síðara. Úthlutun veiðiheimilda 1984 byggði á veiðireynslu áranna 1980-83. Síðari tíma útgerðarmenn hafa því sumir keypt veiðirétt af þeim sem voru svo „útsjónarsamir" að sækja sjóinn fyrrgreint tímabil. Þetta er augljós mismunun og hafa menn farið í mál en án árangurs. Íslenskir dómstólar hafa metið það svo að hagkvæmnisrök réttlæti takmarkað aðgengi að auðlindinni. Mannréttindanefnd SÞ komst aftur á móti að annarri niðurstöðu. Hagkvæmni er vinsælt hugtak. Í því felst yfirleitt að stækka og/eða minnka kostnað. Hafa eitt fjall í stað margra hóla. Risinn ræður yfir meira fjármagni og nær forskoti í krafti stærðarinnar. Aðrir ráða sig í vinnu hjá risanum og læra að ganga í takt við hann. Risinn ræður öllu og líf annarra er háð hans dyntum og skapsveiflum. Ef hann dafnar fjárfestir hann í meiri hagræðingu, ef hann fellur verða allir undir. Risinn rís svo fyrstur á lappir. Þannig hefur hagræðingarhagfræðin reynst a.m.k. þessari þjóð. Þessi hagfræði er ágæt þegar menn framleiða sápur en þegar um er að ræða takmarkaða auðlind þjóðar getur hún verið stórvarasöm. Hugtakið hagræðing er eins og hráviði í opinberum skýrslum um sjávarútveg. Landkynningar og ráðuneytisbréf um fiskveiðar eru full af sjálfshóli og yfirlýsingum um hagkvæmni í sjávarútvegi sem þakka á kvótakerfinu. Þetta hugtak, hagræðing, er réttlæting kerfisins. Enda því næst allar breytingar á löggjöf fiskveiða undirorpnar hagkvæmni, hvort sem það eru heimildir til framsals kvóta eða veðsetningar. Þar sem allt snýst um þennan ás þá hlýtur að vera búið að skilgreina hann vel og staðfesta aukna hagkvæmni frá 1984 og sér í lagi frá 1990 þegar kvótaframsalið var heimilað. Hvað segja opinberar hagskýrslur um sjávarútveginn? Þær sýna hækkun á afurðaverði og aukna framlegð, hagræðingu sameiningar og gjaldeyrissköpun. En lítt er hirt um síminnkandi slagkraft sjávarbyggðanna, atgervisflóttann og atvinnumissi þeirra sem brenna upp í hagræðingunni. Fyrir utan þá smán margra bæjarfélaga að skarta stjórum sem hallmæla veiðileyfagjaldi og frjálsum handfæraveiðum í sömu andrá. Þannig mismuna sveitarstjórnamenn einkaframtakinu og tryggja væntanlega eigin framgang í leiðinni. Þegar rýnt er í hagskýrslur má sjá að það er fiskvinnslan en ekki útgerðin sem eykur framlegð í sjávarútvegi. Það er hún sem hefur tæknivæðst en útgerðin beint afrakstrinum annað. Með öðrum orðum hefur hagkvæmni ekki átt sér stað í útgerð síðustu 20 árin. Skipakosturinn úreldist og æ færri leita sér menntunar til sjós. Öll þjóðin hefur þannig látið ljúga að sér. Fylgismenn óbreytts kvótakerfis vara mjög við breytingum á sjálfvirkri úthlutun á veiðikvótum og segja þær ógna undirstöðum atvinnuvegarins. Engu að síður hefur markaðstorg kvótakerfisins fært einstaka aðilum auð vegna sölu almannagæða einungis vegna þess að vera á réttum stað á réttum tíma. Þeir sem keyptu eru ígildi gríðarlegrar skuldsetningar en þeir sem fengu gjafabréfin stýra bæði framboði og eftirspurn. Þetta markaðstorg blómstrar fyrir þennan afmarkaða hóp undir árvissri ríkisvernd, aðrir þjóðfélagsþegnar fregna hagræðið af afspurn eða upplifa gegnum jólabónusa. Útgerðin búktalar fyrir heilu landshlutana. Svona happdrættisvinningar munu aldrei aftur verða í sögunni. Stórútgerðirnar hafa hagnast gríðarlega á þeim 30 árum sem liðin eru frá gjafagjörningnum og einsýnt að valdasprotar þeirra eru djúptækir í íslensku samfélagi. Stórútgerðin er orðin að risa sem gín yfir Alþingi, sveitarstjórnum, öðrum hagsmunasamtökum, fyrirtækjum, fjölmiðlum, starfsmönnum, fjölskyldum og fólki. Skuggi hennar er alls staðar svo varla sést til sólar. Nennum við þessu mikið lengur? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda Guðjón Heiðar Pálsson, Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Skoðun Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski skrifar Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda skrifar Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Sjá meira
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun