Einhliða upptaka alþjóðlegs gjaldmiðils raunhæfur kostur 28. apríl 2012 06:30 Manuel Hinds
Manuel Hinds, fyrrum fjármálaráðherra El Salvador, hvetur Íslendinga til að skoða þann valkost að taka einhliða upp alþjóðlegan gjaldmiðil. El Salvador tók einhliða upp Bandaríkjadal fyrir áratug síðan og segir Hinds, sem veitti þarlendum stjórnvöldum ráð. Einhliða upptaka erlends gjaldmiðils er raunhæfur kostur fyrir Ísland og hefur ýmsa kosti í för með sér. Þetta segir Manuel Hinds, fyrrum fjármálaráðherra El Salvador, en hann var meðal ræðumanna á fundi VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, í Hörpu í gær þar sem rætt var um einhliða upptöku erlends gjaldmiðils. Hinds var helsti ráðgjafi forseta El Salvador þegar landið tók Bandaríkjadal upp einhliða um síðustu aldamót. Í erindi sínu fjallaði Hinds um reynslu El Salvador af einhliða upptöku og vísaði einnig til svipaðrar reynslu Panama og Ekvador. Sagði hann að í öllum tilfellum hefði stöðugleiki aukist. Hinds benti á að lítill gjaldmiðill á borð við krónuna hefði marga ókosti. Hann væri viðskiptahindrun sem kæmi í veg fyrir að Ísland fullnýtti tækifæri sín í alþjóðaviðskiptum. Þá væru vextir mun hærri en ella sem fæli í sér gríðarlegan kostnað fyrir þjóðina. Hinds stillti einhliða upptöku erlends gjaldmiðils upp sem valkosti sem Ísland ætti að skoða. Vildu Íslendingar fara þá leið lægi beinast við að líta til Bandaríkjadals. Spurður um evruna sagði Hinds hana einnig koma til greina en galt varhug við því sem fylgdi Evrópusambandsaðild. Þá væri Evrópski seðlabankinn líklegur til að reyna að koma í veg fyrir einhliða upptöku evru en sá bandaríski kæmi líklega ekki í veg fyrir einhliða upptöku Bandaríkjadals. Loks sagði Hinds það misskilning að einhliða upptaka væri gríðarlega kostnaðarsöm. Ekki þyrfti að skipta út öllum krónum í hagkerfinu heldur einungis svokölluðu grunnfé Seðlabankans sem er samtala seðla og mynta í umferð og innistæðna innlánsstofnana í Seðlabankanum. Væri því um að ræða einskiptiskostnað upp á rúmlega 70 milljarða króna miðað við stærð grunnfjár Seðlabanks í janúar. Í pallborði með Hinds voru Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, Heiðar Már Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, og Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningar Íslandsbanka. Þórarinn lýsti þeirri skoðun sinni að vissulega mælti margt með því að Ísland tæki upp alþjóðlegan gjaldmiðil en benti á að slíkri aðgerð fylgdu einnig ókostir. Þá gæti einhliða upptaka verið varasöm og bætti við að því lægi evran beinast við. Heiðar hvatti til upptöku Kanadadollars en tók þó fram að val á alþjóðlegri mynt væri ekki helsta áhyggjuefnið. Núverandi ástand krónunnar í þröngum gjaldeyrishöftum með mjög skuldsettan ríkissjóð væri stærsti vandinn og úr honum þyrfti að leysa án tafar ætti ekki að fara illa. Einhliða upptaka Kanadadollars væri leið til þess. Ingólfur sagði reynslu annarra ríkja af einhliða upptöku sýna að slíkri aðgerð fylgdu bæði kostir og gallar. Krónan hefði hins vegar ekki reynst stöðugur gjaldmiðill og ýmislegt benti til þess að einhliða upptaka gæti hentað Íslandi. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira