Arnór: Við tókum bara Króatana á þetta Henry Birgir Gunnarsson í Vrsac skrifar 19. janúar 2012 07:00 Arnór Atlason. Mynd/Vilhelm
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, og Arnór Atlason voru ánægðir með sigurinn á Norðmönnum í gærkvöldi enda leit þetta ekki alltof vel út þegar Norðmenn voru komnir fjórum mörkum yfir í seinni hálfleik. „Það var aðdáunarvert að upplifa þennan karakter, þennan sigurvilja og þetta æðruleysi sem einkenndi liðið allan tímann. Það var mjög vel spilað út úr þessu í lokin," sagði Guðmundur. „Við spiluðum af skynsemi í seinni hálfleik og við bættum vörnina. Hún var eiginlega orðin frábær því við fáum bara á okkur 12 mörk í síðari hálfleik sem er afburðargott. Það var engin lognmolla í hálfleik þegar ég lýsti því hvað mér fannst um vörnina í fyrri hálfleik. Við fórum yfir hana og við gerðum breytingar og mér fannst þessar áherslubreytingar svínvirka," sagði Guðmundur. „Ég get ekki annað en hrósað drengjunum fyrir þennan frábæra síðari hálfleik. Við spiluðum reyndar frábæran sóknarleik í fyrri hálfleik en fengum á okkur 20 og varnarleikurinn var afspyrnuslakur í fyrri hálfleiknum og markvarslan sömuleiðis. Það verður að segjast eins og er. Við bættum þetta hvorutveggja í síðari hálfleik og uppskárum stórkostlegan sigur á móti mjög erfiðu liði," sagði Guðmundur. „Við tókum bara Króatana á þetta. Við lentum í þessu í síðasta leik. Þetta var óþolandi í fyrri hálfleiknum þegar við náðum aldrei í þá. Það var ekki boðlegt hvernig þeir löbbuðu þá í gegnum okkur. Við komust aðeins meira í þá í seinni hálfleik, náðum fleiri aukaköstum, Bjöggi tók fleiri bolta í markinu og við náðum fleiri hraðaupphlaupum sem við þurftum til að vinna leikinn," sagði Arnór Atlason. „Sóknarleikurinn hikstaði aðeins í seinni hálfleik eftir að hafa gengið mjög vel í fyrri hálfleiknum. Þetta leit ekki vel út því við vorum komnir fjórum mörkum undir. Þetta er bara karakter að klára þennan leik, við getum verið rosalega sáttir með þessi tvö stig en verðum líka að viðurkenna að við vorum heppnir," sagði Arnór.
Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira