Björn Friðfinnsson látinn 12. júlí 2012 11:09
Björn Friðfinnsson lögfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri lést þann 11. Júlí síðastliðinn, 72 ára að aldri. Björn átti að baki langan og farsælan starfsferil í opinberri stjórnsýslu. Hann starfaði sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneyti, sameinuðu viðskipta- og iðnaðarráðuneyti og í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Hann var einn af framkvæmdastjórum ESA (EFTA Surveillance Authority) í Brussel, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri lögfræði-og stjórnsýsludeildar borgarinnar, fjármálastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og bæjarstjóri á Húsavík, formaður Almannavarnaráðs og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Björn gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum, var stundakennari og prófdómari í opinberri stjórnsýslu og Evrópurétti við lagadeild Háskóla Íslands og skrifaði meðal annars kennslubók í opinberri stjórnsýslu. Þá hélt hann fjölda fyrirlestra um Evrópurétt og skrifaði greinar í blöð og tímarit um fræði- og þjóðfélagsmál. Hann átti einnig sæti í stjórn Norræna fjárfestingabankans. Meðfram starfi var Björn virkur í félagsmálum. Hann átti sæti í stjórn Rauða kross Íslands og var formaður flóttamannaráðs RKÍ á áttunda áratugnum þegar tekið var á móti hópum flóttamanna frá Víetnam og Póllandi. Hann hafði alla tíð lifandi áhuga á málefnum og velferð flóttamanna og aðstoðaði þá ötullega við aðlögun að íslensku samfélagi. Björn var virkur í Lionshreyfingunni og var formaður Landssambands sumarhúsaeigenda. Eftirlifandi eiginkona hans er Iðunn Steinsdóttir kennari og rithöfundur. Börn þeirra eru þrjú, barnabörnin níu og barnabörnin tvö.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira