Þurfa að lágmarki 28 metra á sekúndu 4. september 2012 05:00 Allt eðlilegt fólk heldur sig innandyra í uppáhaldsveðri fremstu seglbrettakappa heims sem stefna nú mögulega til Íslands. „
Það þarf einfaldlega kolvitlaust veður,“ segir Hrafnkell Sigtryggsson, sem annast mál Red Bull Storm Chase-seglbrettakeppninnar hér á Íslandi. Áætlað er að tíu af fremstu seglbrettaköppum heims taki þátt í umræddri keppni í haust. „Það er fylgst með sjö stöðum í heiminum. Ef spár benda til þess að það verði snarvitlaust veður einhvers staðar þá er liðinu hóað út þangað,“ útskýrir Hrafnkell. Um er að ræða tíu keppendur, dómara, björgunarfólk og kvikmyndatökulið. Aðrir staðir sem til greina koma eru Hatteras-höfði í Bandaríkjunum, norðvesturströnd Írlands, Costa de la Muerta (Strönd dauðans) á Spáni, Bretagne-skagi á Frakklandi, Omaezaki í Japan og Tasmanía sem þykir líklegust í augnablikinu. „Aðstæðurnar sem verið er að leita að eru 28 metrar á sekúndu eða meira,“ segir Hrafnkell sem kveður reyndar dálítið tæpt að Ísland verið fyrir valinu þetta haustið. „Það er helst ef það koma leifar af fellibyl sem það verður nógu hvasst.“ Keppendurnir eru að sögn Hrafnkels flestir þátttakendur í heimsbikarnum í íþróttinni sem Hrafnkell líkir við snjóbrettakeppni. Menn fái stig eftir því hversu hátt er stokkið, eftir því hversu vel stökkin eru útfærð og því hversu stórum öldum menn nái að fleyta sér áfram á. Að sögn Hrafnkels hreifst breskur maður sem var hér á ferð í apríl í fyrra af aðstæðum hér og spurðist fyrir um þær meðal íslenskra seglbrettamanna. Það hafi leitt til þess að gamall seglbrettakappi, sem er nú aðaldómari í bæði heimsbikarnum og Storm Chase-keppninni, hafi fengið augastað á landinu. Hrafnkell aflaði því upplýsinga fyrir þá um ýmsa staði frá suðvesturhorni landsins austur að Vík í Mýrdal. „Landeyjahöfn er mjög spennandi. Sandrifið fyrir utan höfnina er ansi líklegt til þess að búa til stórar öldur,“ segir Hrafnkell, sem kveður svæðið í kringum Vestmannaeyjar og Landeyjahöfn ákjósanlegt. „Það er ekkert sem truflar vindinn og þægileg sandströnd þar sem auðvelt er að fara út með sæþotur sem eru hluti af öryggisviðbúnaðinum. Og ekki spilla fyrir stikkorð eins og eldgos og Eyjafjallajökull.“ Á heimasíðu Storm Chase-keppninnar má lesa að Ísland hafi marga kosti. Ókosturinn sé myrkur þegar komið sé fram í miðjan október og kuldi þegar nóvember er genginn í garð. „En þeim finnst þetta spennandi. Ef það kemur stór lægð geta stórir hlutir gerst. Þetta er séns,“ segir Hrafnkell Sigtryggsson vongóður. gar@frettabladid.is
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira