Farsímar meira notaðir í útlöndum 4. september 2012 05:15 Sífellt meiri útbreiðsla snjallsíma er ein helsta ástæða þess að netnotkun í símum Íslendinga hefur aukist mikið á síðustu misserum. Fréttablaðið/Valli
Netnotkun Íslendinga á ferðalögum erlendis í gegnum farsíma hefur aukist gríðarlega á síðustu misserum. Ódýrari þjónusta og mikil fjölgun snjallsíma eru helstu aflvakar aukningarinnar en nýverið varð mikil lækkun á verði á netþjónustu í símum á EES-svæðinu. Netnotkun í símum íslenskra viðskiptavina Símans á ferðalögum erlendis hefur ríflega tvöfaldast á tveimur árum. Jókst hún um 36 prósent á milli áranna 2010 og 2011 og svo aftur um 68 prósent á milli 2011 og ársins í ár sé miðað við fyrstu sjö mánuði ársins. Telja má líklegt að þessi þróun haldi áfram á næstu mánuðum því 1. júlí síðastliðinn tók gildi ný reglugerð Evrópusambandsins um lækkun á reikiverði fyrir gagnaflutning, símtöl og SMS innan EES-svæðisins. Mest var lækkunin á reikiverði gagnaflutninga sem nam um fimmtíu prósentum. Danskir fjölmiðlar hafa greint frá því að netnotkun Dana á ferðalögum um EES-svæðið hafi aukist merkjanlega í kjölfar gildistöku reglugerðarinnar. Ef marka má tölur frá Símanum og Vodafone á Íslandi hafa íslenskir ferðalangar ekki brugðist jafn skjótt við verðbreytingunum þar sem netnotkun í símum Íslendinga á ferðalögum erlendis jókst ekki merkjanlega í mánuðinum miðað við mánuðinn á undan. Langtímaþróunin er þó skýr og hefur netnotkun í símum Íslendinga erlendis einungis einu sinni verið meiri en í júlí og var það í mánuðinum á undan. - mþl
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Sjá meira