Fáheyrt að ráðherra segi frá fundargerðum ríkisstjórnar 4. september 2012 06:15 16. júlí 2009 samþykkti Alþingi með 33 atkvæðum gegn 28 að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Prófessor í stjórnmálafræði segir fyrirvara einstakra ráðherra ekki hafa áhrif á þá umsókn.fréttablaðið/gva
FRÉTTASKÝRING: Hvað þýða fyrirvarar innanríkisráðherra varðandi ESB? Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, þekkir engin dæmi þess að ráðherrar tjái sig um innihald fundargerða ríkisstjórna, líkt og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur gert undanfarið. Ögmundur hefur sagt frá fyrirvörum sem hann gerði við samningsmarkmið varðandi ESB. Gunnar segir fundargerðir ríkisstjórnar vera trúnaðarmál og venjan sé að tjá sig ekki um það sem í þeim er. „Ég kannast bara ekki við dæmi um svona lagað. Vandinn við að segja frá því hvað er í fundargerðum ríkisstjórna er sá að það getur enginn skoðað þær. Ég hugsa að flestir ráðherrar myndu telja það óeðlilegt að þeir færu að fjalla um það opinberlega sem í fundargerðunum hugsanlega væri.“ Gunnar Helgi segir að í raun geti Ögmundur sagt hvað sem er um fyrirvarana, enginn geti flett því upp í fundargerðunum nema aðrir ráðherrar. Ögmundur segir að hann hafi gert fyrirvara við samningsmarkmiðin við ríkisstjórnarborðið í júlí. „Ég tók málið aftur upp á ríkisstjórnarfundi í ágúst og óskaði eftir sérstakri bókun.“ Gunnar Helgi segir að slík bókun hafi í sjálfu sér lítið vægi út á við. Hins vegar sé óheppilegt að ráðherra bóki gegn stefnu ríkisstjórnarinnar. „Í flestum löndum mundi það gilda að ráðherra sem væri ekki tilbúinn að styðja við stefnu ríkisstjórnarinnar ætti bara einn valkost; að segja af sér. Inn á við gæti hann bókað einhver mótmæli, sem væru fyrir söguna og ef einhver einstök málaferli hefðu risið upp, eitthvað sem varðaði hina lögformlegu ábyrgð hans. Að öðru leyti er erfitt að sjá hvaða gildi þetta ætti að hafa.“ En hafa slíkir fyrirvarar þá engin áhrif á stefnu stjórnarinnar gagnvart ESB? „Nei, ég get ekki séð það. Til að breyta einhverju um slíkt hefði þurft ríkisstjórnarsamþykkt fyrir því.“kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Sjá meira