Sum barnatannkrem veita ónóga vernd 4. september 2012 06:00 Mælt er með því að tannkrem innihaldi á bilinu 1.000 til 1.500 prómill af flúori. Á Íslandi eru til sölu barnatannkrem sem innihalda minna flúormagn.Mynd/Getty
Borið hefur á því að tannkrem sem markaðssett eru sérstaklega fyrir börn hafi minni flúorstyrk en almennt er mælt með. Veita þau því minni vernd fyrir tannskemmdum en ráðlagt er. „Við reynum að fylgjast með þessu og vöktum til að mynda athygli á þessu við alla innflytjendur fyrir tveimur árum. Þá reynum við að hamra á þessu í til dæmis fréttabréfum til foreldra í grunnskólum,“ segir Jóhanna Laufey Ólafsdóttir, verkefnisstjóri hjá Landlæknisembættinu. Fréttablaðinu hafa borist ábendingar um barnatannkrem sem hafa lítinn flúorstyrk og brá blaðamaður blaðsins sér í vettvangsferð í eina af verslunum Hagkaups til að kanna málið. Kom í ljós að ein af fimm tegundum barnatannkrems sem þar var til sölu var með minni flúorstyrk en ráðlagt er. Var þar um að ræða tannkremið Crest For Kids sem inniheldur 500 prómill af flúori en Landlæknisembættið mælir með því að tannkrem innihaldi 1.000 til 1.500 prómill. Embættið ráðleggur foreldrum jafnframt að öll fjölskyldan noti sama tannkremið, helst með mildu bragði, en í mismiklu magni. Þannig er mælt með því að börn yngri en þriggja ára noti það magn tannkrems sem passar á fjórðung af nögl litlafingurs barnsins. Fyrir börn á aldrinum fjögurra til sex ára skal nota tannkremsmagn sem passar á alla nögl litlafingurs barnsins og fyrir börn sex ára og eldri skal nota einn sentimetra af tannkremi.- mþl
Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Innlent Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Erlent Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Innlent Fleiri fréttir Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Sjá meira