Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu 24. október 2012 20:03 Siglufjörður.
Að höfðu samráði við vísindamenn, lögreglustjórana á Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík hefur ríkislögreglustjóri ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, almannavarnir í héraði, viðbragðsaðilar og vísindamenn hafa allir verið að vinna mikla vinnu síðan hrinan hófst á laugardaginn. Verkefni sem eru lýsandi fyrir vinnu þessara aðila á óvissustig. Því var talið rétt að óvissustigi yrði lýst yfir til samræmis við vinnu og viðbrögð þessara aðila. Óvissustig á við þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað. Vísindamannaráð almannavarna fundaði í dag og var niðurstaða fundarins að á þessu svæði er þekkt að verða stórir jarðskjálftar, um 2 til 3 á öld. Það er einnig þekkt að stórir skjálftar fylgi jarðskjálftahrinum þó það sé ekki víst. Hrinan sem nú er í gangi er sú öflugasta sem mælst hefur á 20 ára tímabili. Þá er einnig rétt að hafa í huga að stór jarðskjálfti á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu gæti hleypt af stað öðrum stórum skjálfta annað hvort á sama misgenginu eða á Grímseyjarbeltinu sem liggur til norðvesturs frá Kópaskeri. Fyrir þá landsmenn sem búa á eða við þekkt jarðskjálftasvæði er þetta gott tækifæri til þess að velta fyrir sér hvaða ráðstafanir er hægt að gera til að draga úr tjóni og minnka líkur á slysum vegna jarðskjálfta.Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum. Varnir fyrir jarðskjálfta má finna hér. Viðbrögð við jarðskjálfta má finna hér.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira