Innlent

Vél Iceland Express kyrrsett á Keflavíkurflugvelli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vélin sem kyrrsett var í morgun.
Vélin sem kyrrsett var í morgun. Mynd/ Víkurfréttir
Isavia kyrrsetti í morgun Airbus A-320 flugvél tékkneska flugfélagsins Holiday Czeck Airlines vegna ógreiddra lendingargjalda á Keflavíkurflugvelli. Iceland Express hefur ekki staðið skil á greiðslunum vegna flugs á vegum félagsins, eftir því sem fram kemur á vef Víkurfrétta.

Iceland Express er ekki flugrekandi en endanleg ábyrgð á greiðslu lendingargjalda hvílir á flugrekanda viðkomandi flugvélar sem í þessu tilviki er tékkneska flugfélagið í samræmi við lög um loftferðir. Flugvélin verður um kyrrt á Keflavíkurflugveli þar til viðeigandi greiðslur hafa verð inntar af hendi.

Eins og kom fram í gær hefur WOW air tekið yfir allan flugrekstur og áætlunarflug Iceland Express. Enginn farþegi var í vélinni sem var kyrrsett, því WOW air kaus að semja ekki við Holiday Czeck eftir að félagið tók rekstur Iceland Express yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×