Sjö ára fangelsi fyrir kynferðisbrot Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. nóvember 2012 16:03
Karlmaður var dæmdur í sjö ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn tveimur aðilum. Maðurinn braut ítrekað gegn stúlku á árunum 1998 - 2002, þegar stúlkan var á aldrinum 12-14 ára. Hann var einnig fundinn sekur um að brjóta gegn dreng, en þau brot voru framin á árunum 1997-2010, og hófust þegar drengurinn var sjö ára. Dómurinn í málinu var fjölskipaður. Maðurinn var eiginmaður móðursystur stúlkunnar en pilturinn var vinur sonar hans. Maðurinn hefur ætíð neitað sök. Upphaf málsins má rekja til þess að þriðjudaginn 9. nóvember 2010 kom móðir piltsins á lögreglustöð og lagði fram kæru á hendur manninum vegna kynferðisbrota gagnvart syni sínum. Hún kvað son sinn hafa farið í meðferð í byrjun mánaðarins, en hann hefði misnotað áfengi og fíkniefni undanfarin ár. Hann hefði hringt í sig og sagst þurfa að tala við hana. Í samtali þeirra mæðginanna hefði komið fram hjá honum að ákærði hefði misnotað hann kynferðislega. Nokkrum dögum síðar var pilturinn yfirheyrður af lögreglu og skýrði þar frá sögu sinni. Við yfirheyrslu yfir piltinum kom fram að hann taldi manninn einnig hafa misnotað stúlkuna. Stúlkan var þá yfirheyrð og skýrði frá sinni sögu. Þá voru fjölmörg vitni yfirheyrð áður en maðurinn var handtekinn og yfirheyrður, en hann neitaði sök. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald 16. nóvember 2010 og sat í tíu daga á meðan málið var rannsakað. Auk fangelsisdómsins var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni 1,6 milljónir í bætur og piltinum þrjár milljónir í bætur.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira