Róbert Spanó var ráðgjafi verjanda Baldurs Guðlaugssonar Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. janúar 2012 18:30
Róbert R. Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, veitti verjanda Baldurs Guðlaugssonar ráðgjöf um málarekstur á hendur honum eftir að gefin var út ákæra í málinu, en Róbert hefur gagnrýnt niðurstöður Hæstaréttar um að heimila rannsókn málsins eftir að Fjármálaeftirlitið hafði tilkynnt Baldri að rannsókn væri lokið. Fréttablaðið birti um síðustu helgi frétt um að Róbert R. Spanó, prófessor og forseti lagadeildar, kæmist að þeirri niðurstöðu í nýrri bók um meginregluna um tvöfalt refsinæmi Ne bis in idem að Fjármálaeftirlitinu (FME) hafi verið óheimilt að taka aftur til rannsóknar innherjasvik Baldurs Guðlaugssonar eftir að hafa tilkynnt honum um niðurfellingu málsins vorið 2009. Þessi frétt vakti mikla athygli, enda var Baldur sakfelldur í Héraðsdómi og dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik og var málinu áfrýjað til Hæstaréttar. Flestir fréttamiðlar tóku fréttina upp og nokkur umræða skapaðist um málið í fjölmiðlum. Það sem kom hins vegar ekki fram var að Róbert hafði veitt verjendum Baldurs ráðgjöf í málinu eftir útgáfu ákæru. Í þeim fréttum sem birst hafa um málið hefur þess ekki verið getið en við Róbert er ekki að sakast í þeim efnum.Upplýsti um tengsl sín Róbert hefur aldrei leynt því að hafa veitt ráðgjöf í málinu því í undirmálsgrein í bókinni hans á bls. 105 við umfjöllun um dóm Hæstaréttar í máli þar sem Baldur krafðist þess að rannsókn í máli hans yrði felld niður, segir orðrétt: „Það skal upplýst að höfundur þessa rits hefur veitt verjanda X ráðgjöf um ákveðna þætti málsins við meðferð þess fyrir dómi eftir að gefin var út ákæra í því 13. október 2010." Þarna er upplýsir Róbert um tengslin í samræmi við siðareglur Háskóla Íslands. Í tímayfirliti verjanda Baldurs sem lagt var fram í héraðsdómi koma jafnframt fram skýringar á hverjum seldum tíma sem fór í vörnina. Þar koma fram upplýsingar um fundi sem lögmenn sem komu að vörninni áttu með Róberti.Ekki jafn afdráttarlausar niðurstöður og látið er í veðri vaka En það sem er kannski athyglisverðast í málinu er að niðurstöður Róberts eru ekki jafn afdráttarlausar og ráða má af umfjöllun sumra fjölmiðla um niðurstöður hans. Af lestri ritsins sést að hann slær varnagla á allar ályktanir sínar í bókinni en sá hluti hennar er fjallar um niðurstöður um mál Baldurs á rannsóknarstigi er fyrst og fremst fræðileg gagnrýni á rökstuðning Hæstaréttar þar sem niðurfellingu málsins var hafnað af réttinum, en í bókinni segir Róbert m.a á bls. 118: „Því verður ekki talið að framangreind afstaða Hæstaréttar sé reist á nægilega sterkum rökum, þ.e að á hafi skort að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins 7. maí 2009 hafi eins og atvikum var háttað falið í sér „ígildi lokaafgreiðslu í merkingu 1. mgr. 4.gr. 7. viðauka" (...) Er því ekki loku fyrir það skotið að dómstóllinn hafi í reynd talið að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að taka mál X til nýrrar umfjöllunar hafi falið í sér endurupptöku á fyrri ákvörðun og verið heimil á grundvelli 2.mgr. 4.gr. 7. viðauka..." Hér er vitnað til 7. viðauka við Mannréttindasáttmála Evrópu. Og á bls. 198 segir: „Með vísan til alls framangreinds verður hér talið að draga megi í efa réttmæti þeirrar niðurstöðu Hæstaréttar í dóminum frá 3. febrúar 2010 að Fjármálaeftirlitið hafi á grundvelli almennra reglna stjórnsýsluréttar um skilyrtar stjórnvaldsákvarðanir verið heimilt að endurupptaka mál X með þeim hætti sem gert var." (leturbreyting blaðam.) Baldur var sakfelldur í Héraðsdómi eins og áður segir. Mál hans verður flutt í Hæstarétti hinn 25. janúar næstkomandi. thorbjorn@stod2.is
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Viðskipti innlent Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Viðskipti innlent Kann best við sig í háspennunni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira