Glerbotnsbátur sigli frá Rauðukusunesi 28. apríl 2012 07:00 Ólafur Örn Haraldsson
Þingvallanefnd hefur heimilað útgerð rafknúins útsýnisbáts með gegnsæjum botni til siglinga á Þingvallavatni. Þjóðgarðsvörður mælir með því að bryggja fyrir glerbytnuna verði í Rauðukusunesi en skipulagsmálin eru óleystur vandi. „Okkur finnst við ekki fá nógan stuðning frá Þingvallanefnd með þessu leyfi sem hún gaf,“ segir Gissur Baldursson skipstjóri, annar tveggja sem samþykkt var að heimila að gera út útsýnisbát með glerbotni frá þjóðgarðinum á Þingvöllum. Gissur og Snæbjörn Ólafsson hafa um nokkurra missera skeið sóst eftir leyfi fyrir að gera út rafknúna glerbytnu fyrir fimmtán til tuttugu farþega á Þingvallavatni. Þeir hafa þrýst á um svör áður en lokahönnun og smíði bátsins hefst. Í desember síðastliðnum lagði Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður ásamt fræðslufulltrúa þjóðgarðsins til að Þingvallanefnd samþykkti málið. Nefndin ákvað þá að fela Ólafi að semja við Gissur og Snæbjörn um verkefnið, meðal annars um aðstöðugjald vegna kostnaðar fyrir þjóðgarðinn. Ábúandinn á Kárastöðum mun einnig hafa gefið sitt samþykki. „Við erum búnir að hanna bátinn í grófum dráttum og rafbúnaðinn í hann en það hefur lítið annað gerst frá því Þingvallanefnd ákvað að samningurinn við okkur yrði gerður,“ segir Gissur. Í áðurnefndu minnisblaði þjóðgarðsvarðar og fræðslufulltrúans segir að þeir hafi með Gissuri og Snæbirni skoðað þrjú svæði undir starfsemina. Mældu þeir með því að Nestá á Rauðukusunesi í Kárastaðalandi yrði skoðuð nánar sem aðstaða fyrir rafmagnsbátinn. Þar í kring er talsverð sumarhúsabyggð. „Þetta mál er í vinnslu bæði hjá þeim og okkur. Við höfum verið að horfa á Kárastaðalandið en það er ekki kominn neinn botn í það,“ segir Ólafur og bendir á að gæta þurfi að mjög mörgum atriðum. „Ef það þarf að reisa þarna flotbryggju, bílastæði, salerni og önnur mannvirki og laga vegi þá þarf það náttúrlega að fara fyrir byggingarnefnd,“ segir Ólafur og bætir við að eins þurfi Siglingastofnunin að fara yfir öryggismál. „Þetta tekur allt sinn tíma.“ Gissur segir þá Snæbjörn ánægða með Rauðukusunes fyrir bátinn sem verður með glerglugga á kilinum svo farþegar geti horft ofan í djúp Þingvallavatns. Svo virðist hins vegar sem runnar séu tvær grímur á Þingvallanefnd vegna skipulagsmála á svæðinu. „En við erum ekkert hættir því við erum búnir að leggja allt of mikla vinnu og peninga í að hanna þetta og koma þessu af stað til að leggja árar í bát núna,“ segir Gissur Baldursson. gar@frettabladid.is „Við erum búnir að hanna bátinn í grófum dráttum og rafbúnaðinn í hann en það hefur lítið annað gerst frá því Þingvallanefnd ákvað að samningurinn við okkur yrði gerður.“ Gissur Baldursson
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira